Skipulags- og umhverfisnefnd, fundur nr. 8
Mánudaginn 8. október 2007 kl. 20:00 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgárbyggðar saman til fundar í Þelamerkurskóla.
Á fundinum voru: Oddur Gunnarsson, Aðalheiður Eiríksdóttir, Birna Jóhannesdóttir og Guðmundur Sigvaldason, sveitarstjóri. Á fundinum var einnig Yngvi Þór Loftsson, skipulagsráðgjafi aðalskipulags.
Þetta gerðist:
1. Staða aðalskipulagsgerðar
Skipulagsráðgjafi gerði grein fyrir stöðu gerðar aðalskipulags fyrir Hörgárbyggð.
- Frágangur texta í forsenduhefti og stefnumörkun greinargerðar er á lokastigi.
- Frágangi á uppdráttum fyrir svæðið næst Akureyri er lokið.
- Tillögur um vegtengingar við Akureyri liggja fyrir.
- Tillaga um stækkun Skógarhlíðarhverfis liggur fyrir.
2. Ákvarðanir um aðalskipulagið
Skipulags- og umhverfisnefnd ákvað að leggja til að á aðalskipulagsuppdrætti verði:
- Stækkun Skógarhlíðarhverfis um rúmlega 5 ha
- Íbúðabyggð næst sjó á landi Blómsturvalla og Brávalla, alls um 14 ha.
- Hringtorg á Hringveginum á móts við Húsasmiðjuna.
- Vegtenging milli Skógarhlíðarhverfis og Akureyrar skv. tillögu B, dags. 3. okt. 2007, með nánari útfærslu skipulagsráðgjafa.
3. Næstu skref í aðalskipulagsgerðinni
Á næstu vikum eftir fundinn verður unnið að eftirfarandi:
- Yfirlestur greinargerðar hjá sveitarstjórn og nefndum
- Kynningu skipulagstillögunnar fyrir nágrannasveitarfélög
- Kynningu á skipulagstillögu fyrir lögformlegum umsagnaraðilum
4. Framhald aðalskipulagsgerðarinnar
Gert er ráð fyrir að í nóvember verði skipulagstillagan send Skipulagsstofnun til yfirferðar og í desember verði tillagan samþykkt af sveitarstjórn til kynningar. Í janúar er stefnt að kynningu á skipulagstillögunni á íbúafundi og svo auglýsingu hennar í febrúarmánuði.
Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 22:00.