Skipulags- og umhverfisnefnd, fundur nr. 49
Skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar
49. fundur
Fundargerð
Þriðjudaginn 12. desember 2017 kl. 15:30 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Jón Þór Benediktsson formaður, Jóhanna María Oddsdóttir og Agnar Þór Magnússon í skipulags- og umhverfisnefnd, Vigfús Björnsson skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.
1. Deiliskipulag Hjalteyrar
Skipulagshöfundur Árni Ólafsson mætti til fundar við nefndina og fór yfir deiliskipulagstillöguna.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að beina því til sveitarstjórnar að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Hjalteyrar, Hörgársveit skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010.
2. Verndarsvæði í byggð, Hjalteyri
Lögð fram drög að greinargerð frá formanni nefndarinnar og farið verður yfir málið ásamt skipulagshöfundi og skipulagsfulltrúa.
Formanni, skipulagshöfundi og skipulags- og byggingarfulltrúa falið að fullvinna greinargerðina og leggja hana fyrir sveitarstjórn.
3. Erindi frá eigendum Glæsibæjar varðandi breytingu á skipulagi
Lagt fram erindi frá GLB17 ehf, eigendum Glæsibæjar er varðar ósk um breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi jarðarinnar ásamt ósk um efnistöku. Uppdrættir fylgja.
Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 28. nóvember 2017 að að vísa erindinu til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisnefnd. Fulltrúi eiganda mætti til fundar við nefndina og kynnti þær hugmyndir sem eigendur eru með varðandi skipulag á jörðinni. Nefndin fór yfir málið er fulltrúi eiganda hafði vikið af fundi.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að unnin verði aðalskipulagsbreyting er taki til breytinga á landnotkun á jörðinni Glæsibæ. Markmið breytinganna er að heimila íbúðabyggð á allt að 16,8 ha svæði og verslunar- og þjónustusvæði á allt að 16 ha svæði. Í samræmi við ákvæði í núgildandi aðalskipulagi er ekki gert ráð fyrir að íbúðasvæðið verði skilgreint sem þéttbýli.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að eigendum Glæsibæjar verði heimilað að deiliskipuleggja fyrirhugað íbúða- , verslunar- og þjónustusvæði samhliða aðalskipulagsbreytingunni.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ekki verði heimiluð efnistaka á jörðinni nema til einkanota.
4. Erindi frá eigendum Hjalteyrarskóla varðandi lóðarstækkun
Lagt fram erindi ásamt uppdrætti frá eigendum Hjalteyrarskóla varðandi kaup á lóð og lóðarstækkun við Hótel Hjalteyri. Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 28. nóvember 2017 að að vísa erindinu til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisnefnd. Lagt var fram á fundinum skjal þar sem nánar var gerð grein fyrir hugmyndum um nýtingu á lóðinni.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að lóðin/lóðirnar verði ekki seldar. Hinsvegar er fullur vilji til stækkunar á núverandi leigulóð.
5. Erindi frá HGH verk ehf varðandi malarnámu í landi Spónsgerðis
Lagt fram erindi ásamt uppdrætti frá HGH verk ehf þar sem óskað er eftir námaleyfi í landi Spónsgerðis.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að afgreiðslu málsins verði frestað og óskað verði eftir því að umsækjandi leggi fram álit Skipulagsstofnunar á matskyldu framkvæmdarinnar samkv. lögum um umhverfismat nr. 106/2000.
6. Reglur um stöðuleyfi
Lagt fram uppkast að reglum um stöðuleyfi fyrir gáma og annað bráðabirgðahúsnæði í Hörgársveit.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
7. Umhverfisverðlaun Hörgársveitar
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti hverjir muni fá umhverfisverðlaun Hörgársveitar 2017.
Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 19:20