Skipulags- og umhverfisnefnd, fundur nr. 2
Fundarmenn: Hanna Rósa Sveinsdóttir, Anna Dóra Gunnarsdóttir, Birna Jóhannes-dóttir, Jón Þór Benediktsson og Róbert Fanndal í skipulags- og umhverfisnefnd og Guðmundur Sigvaldason, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð. Árni K. Bjarnason, fv. sveitarstjóri, sat fundinn undir 2. lið fundargerðarinnar.
Þetta gerðist:
1. Fjárhagsrammi nefndarinnar fyrir árið 2011 Lögð fram drög að fjárhagsramma skipulags- og umhverfisnefndar fyrir árið 2011. Þá voru kynnt frumdrög að fjárhagsáætlun ársins 2011 fyrir þá málaflokka sem nefndin hefur með að gera, sem eru hreinlætismál, skipulags- og byggingamál og umhverfismál. Umræður urðu um drögin.
2. Rotþróamál, reglur og gjaldskrá Lagðar fram tillögur að samræmdum reglum um rotþróamál í sveitarfélaginu, sbr. 13. lið í fundargerðnefndarinnar frá 22. september 2010. Meginefni tillagnanna er sem hér segir: · Sameiginleg samþykkt verði sett um fráveitur fyrir sveitarfélagið. · Fráveitugjald/holræsagjald verði með sambærilegum hætti á Lónsbakka og Hjalteyri (að hluta) og verði miðað við hundraðshluta af fasteignamati. · Sveitarfélagið eigi ekki fjárhagslega aðkomu að rotþróarframkvæmdum í dreifbýli. · Tæming rotþróa verði skipulögð af sveitarfélaginu og að jafnaði gengið út frá því að rotþrær séu tæmdar á þriggja ára fresti · Rotþróargjald verði innheimt með öðrum fasteignagjöldum í samræmi við samþykkt. · Rotþróargjald verði innheimt m.t.t. stærðar rotþróa. Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að þær tillögur sem lagðar voru fram á fundinum verði lagðar til grundvallar við framkvæmd fráveitumála í sveitarfélaginu.
3. Aðalskipulag Akureyrar, breyting Lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar, sem fellst í því að afmarkað er 1,8 ha svæði fyrir þjónustustofnanir við Vestursíðu. Einnig er á sama svæði skilgreint 2 ha svæði með blandaðri landnotkun fyrir íbúðabyggð og þjónustustofnanir. Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að af hálfu Hörgársveitar verði ekki verði gerð athugasemd við tillöguna.
4. Svæðisskipulag fyrir Eyjafjörð Gerð var grein fyrir þeirri vinnu sem er í gangi við svæðisskipulag fyrir Eyjafjörð. Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 22:00. |