Skipulags- og umhverfisnefnd fundur nr. 124

15.06.2026 13:00

Fundinn sátu:

Agnar Þór Magnússon formaður, Bjarki Freyr Brynjólfsson, Kolbrún Lind Malmquist, Árni Rúnar Örvarsson og Katrín Olsen Björnsdóttir nefndarmenn. Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.

Fundargerð ritaði: Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.

 

Dagskrá:

1. Skógrækt í landi Fagraness í Öxnadal, nr. 0088.2026 Tilkynning um framkvæmd - Umsagnarbeiðni - H2601012
Fyrir fundinum liggur ákvörðun HMS um matsskyldu vegna skógræktar í landi Fagraness í Öxnadal auk greinargerðar framkvæmdaraðila. Sveitarstjórn fjallaði síðast um málið á 197. fundi sínum þann 25. febrúar 2026 þar sem fyrir lá umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar vegna framkvæmdarinnar og samþykkti sveitarstjórn að mæla með því að umhverfismat færi fram.
Samþykkt að fresta afgreiðslu málsins þar sem borist hefur kæra vegna ákvörðunar HMS um matsskyldu. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að sveitarstjórn fjalli um málið.

2. Fagranes L2157606 - Umsókn um leyfi til skógræktar (stækkun á framkvæmdarsvæði) - H2411010
Tekin fyrir að nýju umsókn ITF reforestation ehf. um framkvæmdaleyfi til stækkunar skógræktarsvæðis í landi Fagraness en umsóknin var seinast á fundi nefndarinnar 27. mars 2025 þar sem umsóknaraðila var falið að kalla eftir matsskylduákvörðun áður en framkvæmdaleyfisumsóknin yrði afgreidd. Ákvörðun HMS um matsskyldu liggur nú fyrir og var niðurstaðan að framkvæmdin væri ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Samþykkt að fresta afgreiðslu málsins þar sem borist hefur kæra vegna ákvörðunar HMS um matsskyldu.

3. Steðji - merkjalýsing og afmörkun jarðar - H2605039
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing, dags. 03.04.2026, vegna afmörkunar jarðarinnar Steðja L152540 gagnvart aðliggjandi jörðum.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.

4. Gásir II L234465 - umókn um stofnun nýs fasteignanúmers fyrir gestahús - H2605041
Jón Björn Þorsteinsson Blöndal sækir um stofnun nýs fasteignanúmers fyrir gestahús á lóð Gása II.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að umsókn um stofnun nýs fasteignanúmers fyrir gestahús að Gásum II L234465 verði hafnað. Nefndin telur ekki forsendur til að stofna sérstakt fasteignanúmer fyrir húsið þar sem það stendur innan sömu lóðar og íbúðarhúsið.

5. Hafnarsvæði - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - H2606006
Norðursigling hf sækir um stöðuleyfi fyrir Vitann, miðasölu-/fjölnotahús, á hafnarsvæðinu á Hjalteyri sbr. meðfylgjandi umsókn dags. 02.06.2026.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við að veitt verði stöðuleyfi til eins árs með fyrirvara um að lagðar verði fram frekari upplýsingar um fyrirhugaða starfsemi í aðstöðunni og að starfsemin sé í samræmi við aðalskipulag Hörgársveitar. Verði ekki starfsemi í aðstöðunni, sem samræmist aðalskipulagi Hörgársveitar, innan árs verði stöðuleyfi ekki framlengt. Erindinu verði vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

6. Ásláksstaðir L152460 - afmörkun á landspildu - H2606018
Eigandi Ásláksstaða L152460 sækir um stofnun 10.000 fm landspildu úr jörð sinni sem fengi staðfangið Litla-Stykkið sbr. meðfylgjandi merkjalýsingu dags. 03.06.2026.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.

7. Umsókn um breytingar á aðalskipulagi í landi Skriðu - H2606019
Fyrir fundinum liggur erindi frá Skriðuhestum ehf. þar sem óskað er eftir breytingu á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2024-2044 vegna fyrirhugaðs efnistökusvæðis í landi Skriðu. Í erindinu felst að landbúnaðarsvæði verði breytt í efnistökusvæði fyrir allt að 49.500 m³ efnistöku á um 2,4 ha svæði.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að umsækjanda verði heimilað að hefja vinnu við gerð skipulagslýsingar vegna breytingar á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2024-2044 fyrir efnistökusvæði í landi Skriðu. Skipulagslýsingin verði lögð fyrir skipulags- og umhverfisnefnd til umfjöllunar og afgreiðslu þegar hún liggur fyrir.

8. Spónsgerði 2 (L239616) - umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku - H2512010
Fyrir fundinum liggur að nýju umsókn Finns ehf. um framkvæmdaleyfi til efnistöku á 2,49 ha svæði í landi Spónsgerðis 2 (L239616). Umsóknin var áður tekin fyrir í sveitarstjórn þann 27.01.2026, þar sem samþykkt var að taka umsóknina fyrir að nýju þegar yfirstandandi endurskoðun Aðalskipulags Hörgársveitar lyki.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku í landi Spónsgerðis 2 (L239616) verði samþykkt. Skipulags- og 3byggingarfulltrúi verði heimilt að gefa út framkvæmdaleyfi þegar aðalskipulag Hörgársveitar 2024-2044 hefur hlotið fullnaðarafgreiðslu og tekið gildi. Jafnframt er það skilyrði að frágangi á eldra efnistökusvæði verði lokið.

9. Spónsgerði 2 L239616 - framkvæmdaleyfi vegna frágangs efnistökusvæðis og tilfærslu heimreiðar - H2606020
Fyrir fundinum liggur erindi frá Finni ehf., dags. 08.06.2026, þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi vegna frágangs á eldra malarnámusvæði í landi Spónsgerðis í Hörgársveit og tilfærslu heimreiðar.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt vegna frágangs á eldra malarnámusvæði í landi Spónsgerðis og tilfærslu heimreiðar, í samræmi við fyrirliggjandi gögn og fyrirvara um samþykki Vegagerðar um staðsetningu heimreiðar. Nefndin leggur áherslu á að leyfið taki eingöngu til frágangs svæðisins, landmótunar og tilfærslu efnis innan svæðisins, en ekki nýrrar efnistöku eða brottflutnings efnis. Skipulagsfulltrúa er falið að ganga frá útgáfu framkvæmdaleyfisins.

10. Reynihlíð 2 - 12 Lóðarstækkanir - H2606021
Lögð er fram tillaga að lóðarstækkun fyrir lóðir við Reynihlíð nr. 2-12 í Hörgársveit. Gert er ráð fyrir að lóðirnar stækki um um 110 m² hver, sbr. meðfylgjandi uppdrátt/skýringarmynd.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að unnin verði tillaga að deiliskipulagsbreytingu í samræmi við þær hugmyndir sem lagðar voru fram.

11. Gáseyri L152495 - framkvæmdaleyfisusókn vegna efnistöku - H2606022
Gáseyrin ehf. sækir um framkvæmdaleyfi til efnistöku úr sjó á Gáseyri L152495 á svæði E17 í endurskoðuðu Aðalskipulagi Hörgársveitar 2024-2044. Sótt er um að taka 49.500 m³ af sandi til þriggja ára sbr. meðfylgjandi umsókn dags. 09.06.2026 og fylgigögn.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku úr sjó á Gáseyri (L152495) verði samþykkt. Skipulags- og byggingarfulltrúa verði heimilt að gefa út framkvæmdaleyfi þegar aðalskipulag Hörgársveitar 2024-2044 hefur hlotið fullnaðarafgreiðslu og tekið gildi.

Árni Rúnar Örvarsson vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis og sat Björgvin Helgason fundinn undir þessum lið í hans stað.

12. Glæsibær - erindi um áframhaldandi skipulagsvinnu - H2606032
Tekið fyrir erindi frá GLB17 ehf. um áframhald skipulagsvinnu í landi Glæsibæjar.
Skipulags- og umhverfisnefnd tekur jákvætt í erindið og að fundað verði með fulltrúum GLB17 ehf og fulltrúum sveitarstjórnar og skipulagsnefndar um áframhald skipulagsvinnu í landi Glæsibæjar.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00