Skipulags- og umhverfisnefnd fundur nr. 122
122. fundur skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar haldinn á skrifstofu Hörgársveitar, þriðjudaginn 28. apríl 2026 og hófst hann kl. 08:30.
Fundinn sátu:
Jón Þór Benediktsson formaður, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir, Agnar Þór Magnússon, Bjarki Freyr Brynjólfsson, Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði: Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri
Dagskrá:
1. Lækjarvellir 19 (L240260) - lóðaumsókn - H2604009
Böggur ehf.kt 471004-3750 sækir um athafnalóðina Lækjarvelli 19 (L240260).
Skipulagsnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að lóðinni Lækjarvöllum 19 verði úthlutað til Böggs ehf. kt. 471004-3740.
2. Fagranes (L152434) - Afmörkun á lóð fyrir heilsárshús - H2604021
Tekin fyrir merkjalýsing unnin af Hákoni Jenssyni dags. 02.04.2026 þar sem verið er að stofna 683,3 m² lóð úr landi Fagraness L152434 undir heilsárshús. Sótt er um að nýja lóðin fái staðfangið Fagranes 2. Byggingarreitur undir 200 m² heilsárshús, sem nú er verið að stofna lóð undir, var samþykktur á fundi sveitarstjórnar 27. mars 2025 þegar jákvæð umsögn Minjastofnunar, Vegagerðarinnar og Veðurstofu Íslands lægi fyrir og fylgja umsagnirnar fundargögnum.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að merkjalýsingin verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024 og að lóðin fái staðfangið Fagranes 2.
3. Hagaskógur 2 - Umsókn um byggingarleyfi - H2603048
Erindi dagsett 31.03.2026 þar sem Böggur ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóðinni Hagaskógur 2, Hörgársveit. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Steinmar Heiðar Rögnvaldsson. Samkvæmt deiliskipulagi er heimilt að byggja 280 m² hús á lóðinni en skv. innsendri umsókn fer húsið 12,5 m² yfir nýtingarhlutfall með B-Rými.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að þar sem um óverulegt frávik er að ræða, er ekki er talin þörf á breytingu á deiliskipulagi með vísan í ákvæði 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt.
4. Umsókn um uppsetningu hraðhleðslustöðva í Hörgársveit - H2604022
Tekin fyrir umsókn frá InstaVolt Iceland ehf. um afnot á bílastæðum í sveitarfélaginu til reksturs og uppsetningar á hraðhleðslustöðvum félagsins.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við umsækjanda um málið.
5. Umsókn um stöðuleyfi - H2604005
Arctic Whales ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir söluhús/aðstöðu fyrir hvalaskoðunarfyrirtæki á Hjalteyri sem svipar til 40 feta gáms en yrði klætt á snyrtilegan hátt.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að fresta afgreiðslu erindsins og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að afla frekari gagna frá umsækjanda.
6. Stórabrekka 2 - Umsókn um byggingarheimild - H2604010
Reynir Örn Hannesson sækir um byggingu 280,8 fm stálgrindarskemmu á jörðinni Stórubrekku 2 (L239272) sbr. meðfylgjandi umsókn og aðaluppdrætti, unna af Magnúsi Val Benediktssyni dags. 10.04.2026
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við byggingaráformin. Þar sem áformin varða hvorki aðra en málsaðila og sveitarfélagið skal fallið frá grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en leita skal umsagnar Minjastofnunar áður en byggingarleyfi verður veitt. Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri vék af fundi undir þessum lið.
7. Hreinsunardagar 2026 - H2604033
Umræður um hreinsunardaga 15.-17. maí 2026.
Skipulags- og umhverfisnefnd hvetur íbúa til þátttöku í fegrun og hreinsun svæða í nærumhverfinu. Sveitarfélagið tekur þátt í móttöku og förgun og kynni það fyrir íbúum.
8. Bárulundur 2 - Merkjalýsing fyrir nýja lóð. - H2604030
Merkjalýsing vegna afmörkunar og hnitsetningu á landspildu innan Bárulunds lögð fram til staðfestingar.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Jón Þór Benediktsson vék af fundi undir þessum lið.
9. Umræður um framkvæmdarleyfi vegna efnistöku - H2604034
Umræður um framkvæmdarleyfi vegna efnistöku
Skipulags- og umhverfisnefnd áréttar til handahafa framkvæmdaleyfa vegna efnistöku að taka fullt tillit til nærumhverfis er varðar flutning um sveitarfélagið.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:10.