Skipulags- og umhverfisnefnd fundur nr. 121

19.03.2026 08:30

Fundinn sátu:

Jón Þór Benediktsson, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir, Bjarki Freyr Brynjólfsson, Agnar Þór Magnússon, Arnar Ólafsson og Snorri Finnlaugsson.

Fundargerð ritaði: Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri

 

Dagskrá:

 

1. Moldhaugaháls - Framkvæmdaleyfi fyrir vegi að lóðum 21-23 og mön - H2512007
Skútaberg ehf. sótti um framkvæmdaleyfi fyrir vegi að lóðum 21-23 á Moldhaugahálsi. Erindið var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar 27.01.2026 þar sem afgreiðslu þess var frestað og skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við umsækjendur. Nú liggja fyrir uppfærð gögn og nánari upplýsingar um framkvæmdina.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að veitt verði framkvæmdaleyfi samkvæmt samþykktu deiliskipulagi fyrir veg frá vegi að námu og að lóðum 21-23 á Moldhaugahálsi. Lögð er áhersla á að umgengni á svæðinu og ásýnd þess verði góð, sbr. kafla 3.12 í greinargerð deiliskipulagsins. Framkvæmdaleyfi verður ekki gefið út fyrr en skýrsla um stöðu framkvæmda á svæðinu hefur verið afhent skipulags- og byggingarfulltrúa. Framkvæmdaleyfið skal gilda til eins árs.

2. Moldhaugaháls - Framkvæmdaleyfi fyrir vegi frá Hringvegi að námu - H2512006
Skútaberg ehf. sótti um framkvæmdaleyfi fyrir vegi frá Hringvegi að námu á Moldhaugahálsi. Erindið var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar 27.01.2026 þar sem afgreiðslu þess var frestað og skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við umsækjendur. Nú liggja fyrir uppfærð gögn og nánari upplýsingar um framkvæmdina.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að veitt verði framkvæmdaleyfi samkvæmt samþykktu deiliskipulagi fyrir veg frá Hringvegi að námu á Moldhaugahálsi. Bent er á að vegtengingin við Hringveg lendir utan skipulagssvæðis og því mikilvægt að framkvæmdin verði unnin í nánu samráði við Vegagerðina. Framkvæmdaleyfi verður ekki gefið út fyrr en samþykki Vegagerðarinnar liggur fyrir um útfærslu tengingarinnar við Hringveg og skýrsla um stöðu framkvæmda á svæðinu hefur verið afhent skipulags- og byggingarfulltrúa. Lögð er áhersla á að umgengni á svæðinu og ásýnd þess verði góð, sbr. kafla 3.12 í greinargerð deiliskipulagsins. Framkvæmdaleyfið skal gilda til eins árs.

3. Skútar L152537 - umsókn um framkvæmdaleyfi - mön við þjóðveg - H2501001
Skútaberg ehf. sótti um framkvæmdaleyfi fyrir mön við Hringveg á Moldhaugahálsi ásamt vegslóða innan við mönina. Erindið var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar 27.01.2026 þar sem afgreiðslu þess var frestað og skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við umsækjendur. Nú liggja fyrir uppfærð gögn og nánari upplýsingar um framkvæmdina.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að veitt verði framkvæmdaleyfi samkvæmt samþykktu deiliskipulagi fyrir mön við Hringveg á Moldhaugahálsi ásamt vegslóða innan við mönina. Hæð jarðvegsmanar skal vera næg til að byrgja innsýn á geymslusvæðið af þjóðvegi og frá íbúðarhúsum í nágrenni svæðisins og trjágróðri komið fyrir eftir því sem við á. Lögð er áhersla á að umgengni á svæðinu og ásýnd þess verði góð, sbr. kafla 3.12 í greinargerð deiliskipulagsins. Framkvæmdaleyfi verður ekki gefið út fyrr en skýrsla um stöðu framkvæmda á svæðinu hefur verið afhent skipulags- og byggingarfulltrúa. Framkvæmdaleyfið skal gilda til eins árs.

4. Deiliskipulag Lónsbakkahverfis - breytingar v. Lónsvegar 1 - 3. - H2603023
Fyrir fundinum liggja hugmyndir að breytingu á deiliskipulagi Lónsbakkahverfis vegna Lónsvegar 1 og 3.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Lónsbakkahverfis vegna Lónsvegar 1 og 3 í samræmi við umræður á fundinum. Tillagan verði lögð fram á næsta fundi nefndarinnar til frekari umfjöllunar.

5. Skógarhlíð 35 - stækkun lóðar - H2603015
Tekið fyrir erindi frá lóðarhöfum Skógarhlíðar 35 (L179890) þar sem sótt er um stækkun lóðarinnar til norðurs um u.þ.b. 4,6 m sbr. meðfylgjandi gögn. Gildandi greinargerð deiliskipulags Lónsbakka fylgir með fundargögnum.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að kallað verði eftir deiliskipulagsbreytingarblaði og að erindið verði síðan grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ef ekki berast athugasemdir við grenndarkynningu telst erindið samþykkt. Bent er á að ef lóðarstækkunin verður samþykkt að lokinni grenndarkynningu þarf að láta merkjalýsa lóðina.

6. Sólgarður L152369 - stækkun byggingarreits og fyrirhugaðar framkvæmdir - H2603016
Lóðarhafi Sólgarðs (L152369) sækir um breytingu á deiliskipulagi Hjalteyrar þar sem byggingarreitur lóðarinnar stækkar um 2,5 m til austurs frá miðjuhúsi og til suðurs. Jafnframt er sótt um að fá að hækka lóð og færa bílastæði og gögnguleið nær inngangi á bakhlið húss svo bæta megi aðgengi, öryggi og aðkomu að húsinu. Gildandi deiliskipulag Hjalteyrar fylgir með fundargögnum.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að kallað verði eftir deiliskipulagsbreytingarblaði sam lagt verði fyrir nefndina.


7. Hjalteyrarvegur 13-15 - Lóðarstækkun - H2603026
Fyrir fundinum liggur erindi um stækkun lóða við Hjalteyrargötu 13 og 15 á Hjalteyri. Um er að ræða stækkun sem nemur 10 x 37,8 m, eða 378 m², og er ekki gert ráð fyrir mannvirkjagerð á stækkunarsvæðinu.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að erindinu verði hafnað enda samræmist það ekki gildandi deiliskipulagi.

8. Breyting á Aðalskipulagi Akureyrarbæjar vegna Blöndulínu 3 - umsagnarbeiðni - H2404003
Fyrir fundinum liggur umsagnarbeiðni þar sem Akureyrarbær óskar eftir umsögn Hörgársveitar um breytingu á Aðalskipulagi Akureyrarbæjar 2018-2030 vegna Blöndulínu 3. Umsagnarfrestur er til 23.04.2026.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasmed við auglýsta tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrarbæjar 2018-2030.

9. Dalvíkurbyggð: Sandvík, Hauganesi - Umsagnarbeiðni vegna breytingar á ASK (381/2025) og nýtt DSK (383/2025) - H2503050
Fyrir fundinum liggur umsagnarbeiðni þar sem Dalvíkurbyggð óskar eftir umsögn Hörgársveitar vegna breytingar á aðalskipulagi og nýs deiliskipulags fyrir Sandvík á Hauganesi.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ekki verði gerðar athugasemdir við framlagðar aðalskipulagsbreytingar er varðar landnotkun á Hauganesi.

10. Skriða umsókn um framkvæmdarleyfi vegna efnistöku E8 - Skipulagsmál - H2603037
Nesbræður ehf. sækja um framkvæmdaleyfi fyrir hönd landeigenda Skriðu, Skriðuhesta ehf., vegna efnistöku og landmótunar. Umrætt framkvæmdasvæði er 3,2 ha að stærð og er ætlunin er að taka 25.000 m3 af malarefni og flytja svo í það moldarefni og móta sem landbúnaðarland.
Framkvæmdasvæðið er á svæði E8 en samkvæmt Aðalskipulagi er heimild fyrir að taka 75.000 m³ af efni á svæðinu. Landeigendur Skriðu eiga rétt á 1/3 af því efni skv. samkomulagi frá 2022 eða 25.000 m³ þessu til viðbótar hafa landeigendur fornhaga 1 heimilað landeigendum Skriðu, Skriðuhestum ehf. að nýta 1/3 heildarheimildinn alls 25.000 m³ og hefur það efnismagn ekki verið fullnýtt.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt fyrir framkvæmdinni í samræmi við umsókn og framlagðar teikningar. Heildarmagn verði 25.000 m3 og til frádráttar er það magn sem búið er að taka. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11.gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi. Framkvæmdaleyfið verði ekki veitt fyrr en fyrir liggur staðfest heildarmagn sem búið er að taka áður á svæðinu.

Fundi slitið kl. 10:30