Skipulags- og umhverfisnefnd fundur nr. 120

24.02.2026 08:30

120. fundur skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar haldinn á skrifstofu Hörgársveitar, þriðjudaginn 24. febrúar 2026 og hófst hann kl. 08:30.

Fundinn sátu:
Jón Þór Benediktsson, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir, Bjarki Brynjólfsson og Agnar Þór Magnússon nefndarmenn.
Arnar Ólafsson skipulagsfulltrú og Snorri Finnlaugsson sveitartjóri.

Fundargerð ritaði: Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.

Dagskrá:


1. Beiðni um breytingu á Aðalskipulagi Hörgársveitar vegna Blöndulínu 3 - H2308005
Aðalskipulagsbreyting vegna Blöndulínu 3 var auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/1010 og var athugasemdafrestur til 17.01.26. 16 umsagnir bárust a auglýsingatímabilinu og eru þær nú til umfjöllunar nefndarinnar.

Varamennirnir Jóhanna María Oddsdóttir, Ásgeir Már Andrésson og Sigurður Pálsson tóku sæti aðalmannanna Agnars Þórs Magnússonar, Ásrúnar Árnadóttur og Bjarka Brynjólfssonar á fundinum.

1. Erindi, sendandi Náttúruverndarstofnun.
Athugasemd: Stofnunin bendir á vernd vistgerða, fuglalíf, jarðmyndanir við Hraun í Öxnadal, sjónræn áhrif og möguleg áhrif efnistöku á bleikjustofna. Leggur áherslu á vöktun og mótvægisaðgerðir.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Í greinargerð og umhverfismati verður fjallað nánar um vistgerðir, fuglalíf, jarðmyndanir og mótvægisaðgerðir. Vísað er til umhverfismats Blöndulínu 3 og gert ráð fyrir vöktun þar sem við á.
2. Erindi, sendandi Vegagerðin norðursvæði
Athugsemd: Minnt er á leyfisskyldu framkvæmda innan veghelgunarsvæða og samráð vegna þverunar Hringvegar. Gerir ekki athugasemdir.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Tekið til greina. Í greinargerð er vísað til vegalaga nr. 80/2007 og að allar framkvæmdir innan veghelgunarsvæðis séu háðar leyfi Vegagerðarinnar.
3. Erindi, sendandi Minjastofnun Íslands
Minnt á vernd fornleifa, lagfæringu á hugtakanotkun og að senda stofnuninni hönnunargögn með fyrirvara.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Tekið til greina. Hugtakanotkun verður leiðrétt.
4. Erindi, sendandi Náttúrufræðistofnun Íslands
Athugasemd: Áhersla á vöktun fugla, áhrif á jarðminjar og að nýta niðurstöður uumhverfismats.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Tekið til greina. Vöktunaráætlanir og mótvægisaðgerðir byggja á umhverfismati Blöndulínu 3.
5. Erindi, sendandi Fiskistofa
Athugasemd: Bendir á hugsanleg áhrif efnistöku á bleikjustofna og leyfisskyldu framkvæmda við vatn.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Tekið til greina. Í greinargerð og umhverfismatsskýrslu er fjallað um áhrif á vatnshlot og vísað til leyfisskyldu samkvæmt lögum.
6. Erindi, sendandi Landsnet
Athugasemd: Almenn afstaða: Landsnet fagnar því að stefna um 220 kV Blöndulínu 3 sé nú mörkuð í aðalskipulagi Hörgársveitar og telur breytinguna mikilvægt skref í uppbyggingu meginflutningskerfis raforku.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Tekið er undir að breytingin feli í sér mikilvæga stefnumörkun um Blöndulínu 3 í aðalskipulagi Hörgársveitar og er umsögn Landsnets lögð til grundvallar við áframhaldandi útfærslu greinargerðar og skipulagsuppdrátta.
Athugasemd: staða umhverfismats: Bent er á að umhverfismat framkvæmdarinnar hafi verið unnið samkvæmt lögum nr. 111/2021 og að málsmeðferð þess sé lokið. Ekki séu fyrirséðar frekari tilkynningar til Skipulagsstofnunar vegna Blöndulínu 3.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Greinargerð verður uppfærð þannig að skýrt komi fram að málsmeðferð umhverfismats Blöndulínu 3 samkvæmt lögum nr. 111/2021 sé lokið og að ekki séu fyrirséðar frekari tilkynningar vegna framkvæmdarinnar.
Athugasemd: ónákvæmt orðalag í greinargerð: Landsnet bendir á að í greinargerð komi fram orðalag sem gefi til kynna að tilkynna þurfi framkvæmdina til Skipulagsstofnunar, sem sé ekki rétt þar sem umhverfismatið sé þegar lokið.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Orðalag í inngangi og öðrum viðeigandi köflum greinargerðar verður lagað til samræmis við framangreint og ónákvæmar eða villandi tilvísanir felldar brott.
Athugasemd: staða framkvæmda (Hólasandslína3): Í greinargerð sé fjallað um uppsetningu Hólasandslínu 3, en Landsnet bendir á að framkvæmdum við þá línu sé lokið og hún komin í rekstur.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Umfjöllun um Hólasandslínu 3 verður leiðrétt þannig að fram komi að framkvæmdum sé lokið og línan komin í rekstur.
Athugasemd: deiliskipulög innan breytingarsvæðis: Bent er á að í töflu um deiliskipulög sé vísað til svæða sem ekki séu á þeirri línuleið Blöndulínu 3 sem nú er kynnt, og að þarfnast þau því ekki breytinga.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Tafla og umfjöllun um deiliskipulög innan breytingarsvæðis verður endurskoðuð og leiðrétt þannig að einungis sé vísað til þeirra skipulagssvæða sem raunverulega kunna að verða fyrir áhrifum af fyrirhugaðri legu Blöndulínu 3.
Athugasemd: kerfisáætlun og tímaáætlanir: Landsnet bendir á að vísað sé til eldri kerfisáætlunar og að tímaáætlanir framkvæmdarinnar hafi breyst frá því sem greint er frá í greinargerð.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Greinargerð verður uppfærð með vísan til gildandi kerfisáætlunar Landsnets og breyttra tímaáætlana framkvæmdarinnar.
Athugasemd: Rangárvallalína 1: Bent er á að Rangárvallalína 1 sé áætluð til niðurtöku eftir að Blöndulína 3 hefur náð öruggum rekstri og æskilegt sé að það komi fram í aðalskipulagi.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Í aðalskipulagi og greinargerð verður skýrt tekið fram að Rangárvallalína 1 sé víkjandi mannvirki og að gert sé ráð fyrir niðurtöku hennar að uppfylltum skilyrðum um öruggan rekstur Blöndulínu 3.
Athugasemd: helgunarsvæði loftlínu: Landsnet leggur áherslu á að helgunarsvæði Blöndulínu 3 sé skilgreint í aðalskipulagi í samræmi við fyrirliggjandi útreikninga (41?61,5 m), fremur en almenn viðmið (65-85 m).
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Helgunarsvæði Blöndulínu 3 verður skilgreint í aðalskipulagi í samræmi við fyrirliggjandi útreikninga Landsnets (41?61,5 m), með skýrum ákvæðum um byggingarbann og takmarkanir á landnotkun innan svæðisins.
Athugasemd - víðerni: Bent er á að umfjöllun um áhrif á víðerni í greinargerð taki til svæða sem ekki séu á þeirri línuleið sem breyting aðalskipulagsins nær til.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Umfjöllun um áhrif á víðerni verður endurskoðuð þannig að hún taki meðal annars til þeirrar línuleiðar Blöndulínu 3 sem breyting aðalskipulagsins nær til

Ekki eru gerðar athugasemdir við auglýsta skipulagstillögu í erindum sem bárust frá Skagafirði, Dalvíkurbyggð, Veðurstofu Íslands, RARIK, Norðurorku, Akureyrarbæ, Eyjafjarðarsveit, Veitum Dalvíkurbyggðar, Sverri Brynjari Sverrissyni (Ási), Heilbrigðiseftirliti Norðurlands Eystra og Ingva Rúnari Guðmundssyni.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að auglýstri aðalskipulagstillögu verði breytt eins og fram kemur í afgreiðslu nefndarinnar á athugasemdum og að svo breytt skipulagstillaga verði samþykkt skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa er falið að fullnusta gildistöku skipulagsins þegar uppfærð gögn berast.

Varamennirnir Jóhanna María Oddsdóttir, Ásgeir Már Andrésson og Sigurður Pálsson véku af fundi og tóku aðalmennirnir Agnar Þór Magnússon, Ásrún Árnadóttir og Bjarki Brynjólfsson sæti á fundinum.

2. Árskógsvirkjun Þorvaldsdal - umsagnarbeiðni vegna deiliskipulags - H2602008
Dalvíkurbyggð óskar umsagnar sveitarfélagsins um nýtt deiliskipulag fyrir vatnsaflsvirkjun í Þorvaldsdal sem er í auglýsingu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umsagnarfrestur er til 24. febrúar nk.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ekki verði gerðar athugasemdir við deiliskipulagstillöguna, en bendir á nálægð við sveitarfélagamörk Hörgársveitar og Dalvíkurbyggðar í Þorvaldsdal.

3. Vegagerðin - leiðbeiningar um gerð samgöngumats - H2602009
Vegagerðin kynnir nýútgefnar leiðbeiningar um gerð samgöngumats en tilgangur þess er m.a. að kortleggja áform sveitarfélaga með tilliti til áhrifa þeirra á umferð og samgönguinnviði.
Lagt fram til kynningar.

4. Lónsvegur - framkvæmdaleyfisumsókn vegna lagningar dreifikerfis - H2602011
Norðurorka hf. sækir um framkvæmdaleyfi vegna lagningar dreifikerfis hita-, vatns- og fráveitu sunnan Lónsvegar fyrir lóðirnar Lónsveg 1-11 sbr. meðfylgjandi yfirlits- og afstöðumynd.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt fyrir framkvæmdinni í samræmi við umsókn og framlagðar teikningar. Lögð er áhersla á að umferðaröryggi verði tryggt á framkvæmdatíma og á góðan frágang að framkvæmdum loknum. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi.

5. Dvergasteinn lóð L178783 - beiðni um uppsetningu auglýsingaskjás - H2602018
Eik fasteignafélag hf. sækir um leyfi fyrir uppsetningu LED-auglýsingaskjás á norð-vesturhorni lóðarinnar Dvergasteins lóð á Lónsbakka skv. meðfylgjandi gögnum frá Kollgátu dags. 10.02.26
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að erindinu verði hafnað.

6. Björg 2 L219557 - breyting á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag vegna efnisnámu - H2602021
Bjargarnáma ehf. sækir um heimild til breytingar á aðalskipulagi Hörgársveitar og vinnslu nýs deiliskipulags vegna stækkunar efnisnámu að Björgum 2. Meðfylgjandi er skipulagslýsing, unnnin af Lilium teiknistofu dags. 06.01.2026.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að erindinu verði hafnað.

7. Skógrækt í landi Fagraness í Öxnadal, nr. 0088.2026 Tilkynning um framkvæmd - Umsagnarbeiðni - H2601012
Skipulagsstofnun óskar umsagnar Hörgársveitar um tilkynningarskylda framkvæmd vegna skógræktar í landi Fagraness í Öxnadal. Skipulagsstofnun metur hvort framkvæmdin skuli háð umhverfismati og er meðfylgjandi umsagnarbeiðni og greinargerð framkvæmdaraðila.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að mælt verði með því að umhverfismat fari fram.

8. Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2025-2037 - umsagnarbeiðni - H2506007
Eyjafjarðarsveit óskar umsagnar Hörgársveitar um vinnslutillögu að endurskoðuðu Aðalskipulag sveitarfélagsins sem gildir frá 2025-2037 og er umsagnarfrestur til 5. mars nk.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ekki verði gerðar athugasemdir við vinnslutillögu Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar.

9. Hagalaut - áfangi 4. í Glæsibæ - beiðni um breytingu á Aðalskipulagi - H2602046
Landeigendur Glæsibæjar óska eftir því að 4. áfanga íbúðarbyggðar í Glæsibæ, Hagalaut, verði vísað í yfirstandandi endurskoðun Aðalskipulags Hörgársveitar sbr. meðfylgjandi erindi dags. 19.02.26.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að þar sem yfirstandandi endurskoðun Aðalskipulagsins er langt komin telur nefndin að ekki sé hægt að vísa erindinu þangað á þessu stigi máls. Nefndin telur jafnframt að skoða þurfi betur allar hliðar máls áður en ákvörðun er tekin um að hefja skipulagsvinnuna.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15