Skipulags- og umhverfisnefnd fundur nr. 119

23.01.2026 08:30

Föstudaginn 23. janúar 2026 kl. 08:30 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins.

Fundarmenn: Jón Þór Benediktsson formaður, Sunna María Jónasdóttir, Agnar Þór Magnússon, Ásrún Árnadóttir og Bjarki Brynjólfsson í skipulags- og umhverfisnefnd, Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.

Fundargerð ritaði Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.

1. H2305001 - Aðalskipulag Hörgársveitar endurskoðun
Vinnslutillaga vegna endurskoðunar Aðalskipulags Hörgársveitar var kynnt skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var athugasemdafrestur til 22.01.26. 25 umsagnir bárust á kynningartímabilinu. Óskar Gunnarsson skipulagshöfundur mætti á fund nefndarinnar og fór yfir umsagnir og athugasemdir með nefndinni.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að hafa hliðsjón af innkomnum umsögnum við gerð aðalskipulagstillögu og að hún verði síðan auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2. H2308005 - Beiðni um breytingu á Aðalskipulagi Hörgársveitar vegna Blöndulínu 3
Aðalskipulagsbreyting vegna Blöndulínu 3 var auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/1010 og var athugasemdafrestur til 17.01.26. 16 umsagnir bárust á auglýsingatímabilinu. Óskar Gunnarsson skipulagshöfundur mætti á fund nefndarinnar og fór yfir umsagnir og athugasemdir með nefndinni og tillögur að svörum við þeim. Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að fresta afgreiðslu til næsta fundar.

3. H2410010 - Hraun í Öxnadal L152440 - nýtt deiliskipulag
Deiliskipulagstillaga fyrir Hraun í Öxnadal var kynnt skv. 4. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var athugasemdafrestur til 07.01.26. 7 umsagnir bárust og eru þær til umfjöllunar nefndarinnar.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að hafa hliðsjón af innkomnum umsögnum við gerð skipulagstillögu. Bent er á umsögn Minjastofnunar um að skráning húsa og mannvirkja á svæðinu þurfi að liggja fyrir áður en skipulagið verði auglýst og á athugasemd stofnunarinnar um mikilvægi þess að færa þurfi bílastæðið út fyrir heimatúnið. Einnig bendir nefndin á umsögn Vegagerðarinnar um tengingu þjónustuvegar við veg að bílastæði. Deiliskipulagstillagan verði síðan auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar uppfærð gögn berast.

4. H2512009 - Lónsbakki - beiðni um breytingu á aðal- og deiliskipulagi
Eik fasteignafélag ehf. óskar álits nefndarinnar um beiðni um breytingu á aðal- og deiliskipulagi Lónsbakka fyrir lóðirnar Lónsbakka (L152555) og Dvergastein lóð (L178783). Umræddar lóðir eru verslunar- og þjónustulóðir í gildandi deiliskipulagi en óskað er eftir því að fá að breyta þeim í iðnaðar- og athafnasvæði.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að skilgreiningu lóðarinnar verði breytt í athafnasvæði í endurskoðun Aðalskipulags Hörgársveitar.

5. H2512006 - Moldhaugaháls - Framkvæmdaleyfi fyrir vegi frá Hringvegi að námu
Skútaberg ehf. sækir um framkvæmdaleyfi til að byggja veg frá hringvegi og inn í námu á Moldhaugahálsi en vegurinn verður staðsettur skv. samþykktu deiliskipulagi. Gatnamót við hringveg verða skv. tillögu Vegagerðarinnar og verða gerð í samráði við stofnunina. Áætlaður framkvæmdatími er 1 ár.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að erindinu verði frestað og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við umsækjendur.

6. H2512007 - Moldhaugaháls - Framkvæmdaleyfi fyrir vegi að lóðum 21-23 og mön
Skútaberg ehf. sækir um framkvæmdaleyfi til að gera veg frá vegi að námu og að lóðum 21-23 á Moldhaugahálsi en vegurinn yrði staðsettur skv. samþykktu deiliskipulagi. Áætlaður framkvæmdatími er eitt ár, Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að erindinu verði frestað og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við umsækjendur.

7. H2512008 - Moldhaugaháls - Framkvæmdaleyfi fyrir mön við Hringveg
Skútaberg ehf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir mön við hringveginn á Moldhaugahálsi ásamt vegslóða innan við mönina en mönin verður staðsett skv. samþykktu deiliskipulagi. Áætlaður framkvæmdatími er 2 ár.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að erindinu verði frestað og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við umsækjendur.

8. H2512010 - Spónsgerði 2 (L239616) - umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku
Finnur ehf. sækir um framkvæmdaleyfi til efnistöku á 2,49 ha svæði í landi Spóngerðis 2 (L239616). Ætlunin er að taka um 49.500 rúmmetra af efni.
Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að í vinnslu er endurskoðun Aðalskipulags Hörgársveitar og að skilgreina þurfi nýtt efnistökusvæði
vegna framkvæmdarinnar. Skipulags- og umhverfinefnd samþykkti að leggja til við sveitastjórn að umsókn um framkvæmdaleyfi verði tekin fyrir þegar endurskoðun Aðalskipulags lýkur.

9. H2601007 - Skriða (L152409) - umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku og landmótunar
Nesbræður ehf. sækja um framkvæmdaleyfi fyrir hönd landeigenda Skriðu, Skriðuhesta ehf., vegna efnistöku og landmótunar. Umrætt framkvæmdasvæði er 3,2 ha að stærð og er ætlunin er að taka 12.500 m3 af malarefni og flytja svo í það moldarefni og móta sem landbúnaðarland.

Framkvæmdasvæðið er á svæði E8 en samkvæmt Aðalskipulagi er heimild fyrir að taka 75.000 m³ af efni á svæðinu. Landeigendur Skriðu eiga rétt á 1/3 af því efni skv. samkomulagi frá 2022 eða 25.000 m³ og hefur það efnismagn ekki verið fullnýtt. Skipulagsnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt fyrir framkvæmdinni í samræmi við umsókn og framlagðar teikningar. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11.gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi.

10. H2601001 - Ytri-Bægisá land (L189094) - umsókn um breytt staðfang
Eigendur Ytri-Bægisá land (L189094) sækja um að staðfangi fasteignarinnar verði breytt í Ytri-Hamar
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu á staðfangi og að Ytri-Bægisá land (L189094)) verði breytt í Ytri-Hamar í samræmi við reglugerð nr. 577/2017 um skráningu staðfanga.

11. H2601003 - Heiðarfjall L239113 - merkjalýsing um afmörkun lóðarinnar Öxnadalsheiði L172592
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing dags. 06.01.2026 þar sem er verið að hnitsetja lóðina Öxnadalsheiði (L172592) en henni er skipt upp úr þjóðlendunni Heiðarfjalli (L239113). Um er að ræða lóð undir radíóstöð. Jafnframt er óskað eftir að lóðin fái staðfangið Öxnadalsheiði fjarskiptalóð.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024 og að lóðin fái staðfangið Öxnadalsheiði fjarskiptalóð.

12. H2601004 - Stórabrekka L152349 - merkjalýsing vegna afmörkunar landspildu
Eigendur jarðarinnar Stórubrekku (L152349) sækja um afmörkun landspildu úr landi sínu sem ætlunin er að selja til eigenda Syðra-Brekkukots og sameina hana þeirra landeign.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.

13. H2601006 - Hagaflöt 14 (L239202) - beiðni um breytingu á deiliskipulagi
Lóðarhafi Hagaflatar 14 (L239202) óskar eftir breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga Glæsibæjar þar sem byggingarreiturinn stækkar um 1 m til norðurs og 2 m til suðurs. Þá eru lóðanúmer skipulagsuppdráttar uppfærð til samræmis ið landeignaskrá HMS.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að erindið verði grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ef ekki berast athugasemdir við grenndarkynningu telst erindið samþykkt.

14. H2509102 - Bréf Skógræktarfélags Íslands - skógrækt og framkvæmdaleyfi
Lagt fram bréf frá Skógræktarfélagi Íslands, dags. 22. september 2025, þar sem fylgt er eftir ályktun aðalfundar félagsins. Í bréfinu er beint því til sveitarfélaga að skógrækt verði ekki háð framkvæmdaleyfi umfram það sem gildir um annan landbúnað. Erindið lagt fram og kynnt.

15. H2601008 - Brekkuhús 24, Halteyri - Umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Fyrir fundi liggur erindi þar sem Haraldur S. Árnason f.h. eiganda óskar eftir leyfi til að byggja viðbyggingu við núverandi hús að Brekkuhúsum 24, Hjalteyri. Um er að ræða byggingu á einni hæð er tengist efri hæð núverandi húss. Viðbygging yrði um 50m2 og mesta hæð þaks um 4,35m frá gólfi 1. hæðar. meðfylgjandi er teikning eftir Harald S. Árnason.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar erindinu í grenndarkynningu skv. 44. gr. laganna.

 

Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 11:50