Skipulags- og umhverfisnefnd fundur nr. 118
Fimmtudaginn 27. nóvember 2025 kl. 08:30 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins.
Fundarmenn: Jón Þór Benediktsson formaður, Sunna María Jónasdóttir, Agnar Þór Magnússon, Ásrún Árnadóttir og Bjarki Brynjólfsson í skipulags- og umhverfisnefnd, Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.
1. Aðalskipulag Hörgársveitar – endurskoðun (H2305001)
Skipulagshöfundur Aðalskipulags Óskar Örn Gunnarsson mætti á fund nefndarinnar og fór yfir stöðuna á endurskoðun á Aðalskipulagi Hörgársveitar. Lögð fram vinnslutillaga að endurskoðun á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2024-2044. Einnig lögð fram skýrsla frá Verkís um efnistökusvæði í Hörgársveit.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að vinnslu-tillagan verði kynnt skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Haldið verði opið hús í janúar 2026 til kynningar á vinnslutillögunni.
2. Glæsibær – næstu áfangar IV-VI (H2511044)
Lagt fram erindi frá GLB17 ehf. þar sem óskað er eftir að hafin verði vinna við breytingu á aðalskipulagi vegna Glæsibæjar. Breytingin verði unnin í samræmi við meðfylgjandi kynningargögn. Jafnframt er óskað eftir heimild til að vinna að gerð deiliskipulags fyrir áfanga fjögur samhliða vinnu við aðalskipulagsbreytinguna.
Skipulags- og umhverfisnefnd tekur jákvætt í metnaðarfullar tillögur og leggur til við sveitarstjórn að erindinu verði vísað til áframhaldandi vinnu m.a. með tilliti til þess að breyta byggðakjarnanum í formlegt þéttbýli.
3. Garðshorn Kræklingahlíð – umsókn um byggingarheimild (H2511041)
Lagt fram erindi frá landeiganda þar sem óskað er eftir að reisa viðbyggingu við íbúðarhúsið. Með erindinu fylgja teikningar frá HSÁ Teiknistofu.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að erindið verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mg. 44 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabil ef hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið teljist samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu.
4. Hraun í Öxnadal L152440 – nýtt deiliskipulag (H2410010)
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Hraun í Öxnadal, unnin af Landslagi ehf. Tillagan tekur til uppbyggingar gestastofu í núverandi útihúsum, endurbóta á aðkomu, bílastæðum, gönguleiðum og varðveislu fornleifa á svæðinu.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að deiliskipulagstillaga á vinnslustigi verði kynnt skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
5. Fjárhagsáætlun 2026
Lögð fram og rædd tillaga að fjárhagsáætlun 2026 fyrir málaflokk 09 skipulags- og byggingarmál.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti áætlunina fyrir sitt leyti.
Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 11:40