Skipulags- og umhverfisnefnd fundur nr. 117
Fimmtudaginn 6. nóvember 2025 kl. 08:00 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins.
Fundarmenn: Jón Þór Benediktsson formaður, Sunna María Jónasdóttir, Agnar Þór Magnússon, Ásrún Árnadóttir og Bjarki Brynjólfsson í skipulags- og umhverfisnefnd, Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.
1. Aðalskipulag Hörgársveitar – endurskoðun (H2305001)
Skipulagshöfundur Aðalskipulags Óskar Örn Gunnarsson mætti fyrir fund nefndarinnar og fór yfir stöðuna á endurskoðun á Aðalskipulagi Hörgársveitar. Lögð fram drög að greinargerð dagsett í október 2025. Einnig lögð fram drög að skýrslu frá Verkís um efnistökusvæði í Hörgársveit.
Lagt fram til kynningar fyrir frekari vinnu við endurskoðun aðalskipulags Hörgársveitar 2024-2044.
2. Gáseyri – erindi er varðar efnistöku (H2401001)
Lagt fram erindi frá Gáseyrin ehf. vegna framkvæmdaleyfisumsóknar fyrir efnistöku að Gáseyri við ósa Hörgár. Málið var áður tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar 14. nóvember 2024 þar sem ekki var veitt heimild fyrir nýrri efnistöku. Nú liggja fyrir frekari gögn vegna umsóknarinnar m.a. frá lögmanni umsækjanda.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að fela sveitarstjóra og skipulagsfulltrúa í samráði við lögmann sveitarfélagsins að hafa umsjón með áframhaldandi vinnslu málsins og samskiptum við fulltrúa Gáseyrarinnar ehf. í samræmi við umræður á fundinum.
3. Grjótgarður – erindi er varðar efnistöku og frágang námu (H2511001)
Lagt fram erindi frá Árna Arnsteinssyni vegna framkvæmdaleyfisumsóknar. Óskað er eftir heimild upp á 10.000 m3 efnistöku og frágangi á námu í landi Grjótgarðs.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ekki verði veitt heimild fyrir efnistöku fyrr en skýrsla um úttekt á efnistöku í Hörgársveit í tengslum við endurskoðun aðalskipulags liggur fyrir.
4. Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045 – umsagnarbeiðni (H2410008)
Dalvíkurbyggð óskar umsagnar Hörgársveitar um vinnslutillögu vegna endurskoðunar Aðalskipulags Dalvíkurbyggðar 2025–2045. Tillagan er unnin af Yrki arkitektum og liggja nú fyrir uppfærð gögn sem eru til kynningar.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við vinnslutillöguna en bendir á nálægð við sveitarfélagamörk Hörgársveitar varðandi fyrirhugaða Árskógsvirkjun í Þorvaldsdal.
5. Engimýri III – Deiliskipulagsbreyting (H2510029)
Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir breytingum á deiliskipulagi fyrir Engimýri III. Breytingin nær til gistihúsa á skipulagssvæðinu.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt sem óveruleg deiliskipulagsbreyting skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að það verði sent í grenndarkynningu. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabil ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið teljist samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu.
Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 10:10