Skipulags- og umhverfisnefnd fundur nr. 116

25.09.2025 15:30

Fimmtudaginn 25. september 2025 kl. 15:30 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins.

Fundarmenn: Jón Þór Benediktsson formaður, Sunna María Jónasdóttir, Agnar Þór Magnússon, Ásrún Árnadóttir og Bjarki Brynjólfsson í skipulags- og umhverfisnefnd, Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.

Fundargerð ritaði Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.

Varamennirnir Jóhanna María Oddsdóttir, Ásgeir Már Andrésson og Sigurður Pálsson tóku sæti aðalmannanna Agnars Þórs Magnússonar, Ásrúnar Árnadóttur og Bjarka Brynjólfssonar á fundinum.

1. Breyting á Aðalskipulagi Hörgársveitar vegna Blöndulínu 3 (H2308005).
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi vegna Blöndulínu 3 hefur verið í vinnslu og var vinnslutillaga auglýst með athugasemdafresti sem rann út 17. júlí 2025. Óskar Örn Gunnarsson hjá Landmótun hefur farið yfir þær athugasemdir sem bárust og viðbrögð við þeim. Fyrir liggur nú uppfærð tillaga þar sem tekið hefur verið tillit til ábendinga og athugasemda.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að uppfærð tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hörgársveitar vegna Blöndulínu 3 verði send Skipulagsstofnun til athugunar skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að hún verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Haldið verði opið hús til frekari kynningar á auglýsingatíma tillögunnar.

Varamennirnir Jóhanna María Oddsdóttir og Ásgeir Már Andrésson véku af fundi og tóku aðalmennirnir Agnar Þór Magnússon og Ásrún Árnadóttir sæti á fundinum.

2. Hallfríðarstaðir L152401 – umsókn um byggingarreit (H2508023)
Lögð er fram umsókn dags. 20.08.2025 frá Walter Ehrat um byggingarreit mhl. 14 fyrir frístundarhúsi á lóðinni Hallfríðarstaðir, Hörgársveit. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt og fallið verði frá grenndarkynningu þar sem málið varðar ekki aðra en umsækjanda að mati nefndarinnar.

3. Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030 – auglýsing tillögu (H2508024)
Akureyrarbær óskar umsagnar Hörgársveitar vegna breytinga á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030, nr. 1317/2024: Auglýsing tillögu (breyting á aðalskipulagi).
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemd við auglýsta tillögu Akureyrarbæjar að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030, nr. 1317/2024.

4. Brakandi – ósk um breytingu á staðfangi (H2509089)
Lögð fram beiðni frá Jóni Viðari Þorsteinssyni um breytingu á staðfangi fasteignarinnar Brakandi lóð (F2157265) í Hörgársveit og óskað eftir breyttu heiti.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu á staðfangi og að F2157265 (Brakandi lóð) verði breytt í Brakandi III.

5. Bréf frá NTÍ um áhrif 16. gr. laga nr. 55/1992 (H2509074)
Fyrir liggur bréf frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands, þar sem áréttað er að byggingar á þekktum hættusvæðum geta leitt til takmarkaðs eða engan bótaréttar samkvæmt 16. gr. laga nr. 55/1992. Sveitarfélögum er bent á að taka mið af áhættumati náttúruvár í skipulagsáætlunum og upplýsa framkvæmdaaðila og kaupendur um slíkar takmarkanir.
Lagt fram til kynningar.

Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 16:35.