Skipulags- og umhverfisnefnd fundur nr. 115

12.08.2025 08:00

Þriðjudaginn 12. ágúst 2025 kl. 08:00 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins.
Fundarmenn: Jón Þór Benediktsson formaður, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir, Bjarki Brynjólfsson og Jóhanna María Oddsdóttir (vm) í skipulags- og umhverfisnefnd, Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.

Fundargerð ritaði Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.

1. Breyting á Aðalskipulagi Hörgársveitar vegna Blöndulínu 3 (2308005).
Tillaga á breytingu aðalskipulags á vinnslustigi var auglýst og lauk athugasemdafresti 17. júlí 2025. Óskar Örn Gunnarsson hjá Landmótun fór yfir athugasemdir sem bárust og viðbrögð við þeim. Skipulagshöfundur mun á næsta fundi koma með uppfærða tillögu þar sem búið er að taka tillit til ábendinga og athugasemda.

2. Árskógsvirkjun, Þorvaldsdal, nr. 0214/2025: Kynning tillögu á vinnslustigi (breyting á aðalskipulagi) (H2502024).
Dalvíkurbyggð óskar umsagnar Hörgársveitar vegna kynningar tillögu á vinnslustigi að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 fyrir allt að 5 MW vatnsaflsvirkjun í Þorvaldsdalsá, stíflu og stöðvarhús auk 3,7 km langrar aðrennslispípu. Tillagan er unnin af Eflu verkfræðistofu, dags 04. júní 2025. Umsagnarbeiðni barst þann 25. júní 2025, en umsagnarfrestur var veittur til 12. ágúst 2025.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerðar athugasemdir við vinnslutillöguna en bendir á nálægð við sveitarfélagamörk Hörgársveitar.

3. Sandvík - Hauganesi. Nýtt deiliskipulag., nr. 0383/2025: Kynning tillögu á vinnslustigi (nýtt deiliskipulag) (H2503050)
Dalvíkurbyggð óskar umsagnar Hörgársveitar vegna kynningar tillögu að nýju deiliskipulagi vegna áforma um uppbyggingu afþreyingar- og ferðamannasvæðis við Hauganes. Tillagan er unnin af Nordic Office of Architecture, dags 05. júní 2025. Umsagnarbeiðni barst þann 25. júní 2025, en umsagnarfrestur var veittur til 12. ágúst 2025.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerðar athugasemdir við vinnslutillöguna.

4. Landeldi norðan Hauganess - breyting á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar, nr. 0871/2025: Lýsing (breyting á aðalskipulagi) (H2507020)
Dalvíkurbyggð óskar umsagnar Hörgársveitar vegna kynningar á skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og nýtt deiliskipulag vegna áforma um uppbyggingu norðan Hauganess fyrir landeldi, landfyllingu og viðlegumannvirki. Lýsingin er unnin af Teikna - teiknistofu arkitekta, dags júní 2025. Umsagnarbeiðni barst þann 25. júní 2025, en umsagnarfrestur var veittur til 12. ágúst 2025.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerðar athugasemdir við skipulagslýsinguna.

5. Ytri-Bægisá 2 L152509 - stofnun tveggja lóða (H2503052)
Skipulags- og umhverfisnefnd fjallaði á 112. fundi sínum þann 28. apríl sl. um beiðni á stofnun tveggja lóða úr jörðinni Ytri-Bægisá 2 L152509 og nýjum staðföngum á þeim, "Húsá" og "Ytri-Bægisá" og vísa erindinu í grenndarkynningu (mál nr.663/2025). Þær athugasemdir sem bárust á grenndarkynningartímabilinu voru lagðar fram til umfjöllunar.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að á grundvelli athugasemda verði afgreiðslu frestað og óskað eftir nýrri merkjalýsingu.

6. Lónsbakki Þéttbýli – breytingá deiliskipulagi vegna Lónsvegar 9 og 11 (H2508002)
Fyrir fundinum liggur tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Lónsvegur 9 og 11. Um er að ræða fjölgun íbúða úr 6 í 7 á hvorri lóð ásamt fleiri breytingum sem koma fram á meðfylgjandi tillögu.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að vísa erindinu, sem er óveruleg deiliskipulagsbreyting skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, í grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. gr. sömu laga. Heimilt er að stytta grenndar-kynningartímabilið ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við framkvæmdina. Ef ekki berast andmæli á grenndarkynningar-tímabilinu telst breytingin samþykkt.

7. Aðalskipulag Skagafjarðar- auglýsing tillögu (nýtt aðalskipulag) (H2508001)
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar umsagnar Hörgársveitar vegna auglýsingu á tillögu að nýju aðalskipulagi Skagafjarðar, ásamt umhverfismatsskýrslu. Tillagan er unnin af VSÓ Ráðgjöf, dags júní 2025 og er umsagnarfrestur til 15. september næstkomandi.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerðar athugasemdir við tillöguna, en bendir á misræmi sem verður á sveitarfélagamörkum er varðar Blöndulínu 3, þar sem í greinargerð með gildandi aðalskipulagi Hörgársveitar er enn gert ráð fyrir jarðstreng.

8. Ægisgarður nhl. L152375 - umsókn um stækkun lóðar (H2508004)
Fyrir fundinum liggur umsókn dags. 2. ágúst 2025 frá Hrafnhildi Báru Hilmarsdóttur um stækkun á lóðinni Ægisgarði nhl. L152375. Uppdrættir fylgja umsókn sem sýna fyrirhugaða stækkun.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að erindinu verði hafnað enda samræmist það ekki samþykktu deiliskipulagi.

9. Lækjarvellir - umsókn um auglýstar lóðir (H2310021)
Fyrir fundinum liggur umsókn um lóð við Lækjarvelli.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að gengið verði til samninga við SKG verktaka ehf kt. 591199-2429 um úthlutun lóðarinnar nr. 21 við Lækjarvelli.

10. Umhverfisverðlaun Hörgársveitar 2025
Umræður um val á verðlaunahöfum og var ákveðið hver fengi verðlaunin 2025.

11. Skógarhlíð 41 - umsókn um byggingarreit fyrir 80fm geymslu (H2508005)
Fyrir fundinum liggur umókn eiganda um byggingarreit fyrir 80fm geymslu á lóðinni Skógarhlíð 41. Ákveðið var að óska eftir frekari gögnum.
Sunna María Jónasdóttir vék af fundi undir þessum lið.

 

Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 09:45