Skipulags- og umhverfisnefnd fundur nr. 114

10.06.2025 09:00

Þriðjudaginn 10. júní 2025 kl. 09:00 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins.

Fundarmenn: Jón Þór Benediktsson formaður, Agnar Þór Magnússon, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Bjarki Brynjólfsson í skipulags- og umhverfisnefnd, Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.

 

Fundargerð ritaði Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.

1. Breyting á Aðalskipulagi Hörgársveitar vegna Blöndulínu 3 (2308005).
Fyrir fundinum liggur tillaga á vinnslustigi, unnin af Óskari Erni Gunnarssyni hjá Landmótun dags. 30.09.2024 vegna breytingar á aðalskipulagi Hörgársveitar vegna Blöndulínu 3.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að vinnslutillögu um breytingu á aðalskipulagi Hörgársveitar vegna Blöndulínu 3 verði vísað í kynningu skv. 2. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2. Möðruvallaafrétt - Umsókn um stofnun Þjóðlendu (2505038).
Fyrir fundinum liggur erindi þar sem Forsætisráðuneytið óskar eftir stofnun þjóðlendu skv. úrskurði óbyggðarnefndar í máli nr. 1/2009. Nefndin lýsir yfir mikilli undrun sinni á ásælni ríkisins í afréttarlönd þar sem hún gæti haft áhrif á framtíðar nýtingu þeirra.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja þó fyrir sitt leyti afmörkun þjóðlendunar skv. þeim uppdrætti sem fylgir umsókninni.

3. Ytri-Bægisá 1 og 2 og Garðshorn – Umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku í óskiptu landi (2504003).
Fyrir fundinum liggur erindi þar sem sótt er um að taka efni úr námu sem opinn er neðan Þjóðvegar 1, og á mótum Hörgardalsvegar- Sjá meðfygljandi uppdrátt unninn af Guðmundi H. Gunnarssyni dags. 09.05.2025.
Skipulags- og umhverfisnefnd tekur jákvætt í umsóknina en leggur til við sveitarstjórn að benda á að fyrirhugaðar framkvæmdir kunna að falla undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Ef leyfa á nýtt efnistökusvæði af þessari stærðargráðu þarf fyrst að liggja fyrir matsskylduákvörðun Skipulagsstofnunar eða umhverfismat áður umsóknin verði tekin til afgreiðslu.

Agnar Þór Magnússon vék af fundi undir þessum lið.

4. Árskógssandur - stækkun íbúðarsvæðis - breyting á aðalskipulagi - Kynning tillögu á vinnslustigi (breyting á aðalskipulagi mál nr. 692/2025 í skipulagsgátt) (2505039).
Dalvíkurbyggð óskar umsagnar Hörgársveitar vegna kynningar tillögu á vinnslustigi að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna stækkunar á íbúðarsvæði 706-ÍB sunnan og austan Aðalbrautar á Árskógssandi. Samhliða aðalskipulagsbreytingu er unnið að nýju deiliskipulagi fyrir svæðið.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemdir við skipulagstillöguna.

5. Reynihlíð 20-26 - breyting á DSK, bílastæði (2506001).
Fyrir fundinum liggur umsókn lóðarhafa um staðsetningu nýrra bílastæða við húsin nr. 20 og 22 við Reynihlíð samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindinu verði hafnað.

6. Spónsgerði L152348 - afmörkun og hnitsetning landspildu (2506005)
Merkjalýsing vegna afmörkunar og hnitsetningu á landspildu innan Spónsgerði lögð fram fyrir skipulags- og umhverfisnefnd til staðfestingar.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024, enda liggi fyrir þinglýst kvöð um aðgengi og lagnaleiðir.

7. VÍN erindi vegna skipulags skógræktar (2506006)
Erindið varðar leiðbeiningar um val á landi til skógræktar.
Lagt fram til kynningar.

 

Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 9:45