Skipulags- og umhverfisnefnd fundur nr. 108

10.12.2024 08:30

Skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar 108. fundur

Fundargerð

Þriðjudaginn 10. desember 2024 kl. 08:30 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins.
Fundarmenn: Jón Þór Benediktsson formaður, Agnar Þór Magnússon, Ásrún Árnadóttir og Sunna María Jónasdóttir í skipulags- og umhverfisnefnd, Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.

Fundargerð ritaði Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.

  1. Reynihlíð/Lónsbakkahverfi - L223515 - RARIK - Umsókn um lóð fyrir dreifistöð (2411011)

Fyrir fundinum liggur erindi frá Rarik, þar sem óskað er eftir lóð undir dreifistöð við Lónsbakka í tengslum við styrkingu á dreifikerfi RARIK í Hörgársveit. Óskað er eftir óverulegri breytingu á deiliskipulagi á svæðinu, þannig að hægt verði að stofna lóð undir dreifistöðina vestan lóðar B. Jensen.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að óveruleg
breyting verði gerð á deiliskipulaginu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem lóð verður stofnuð á tilgreindu svæði og vísa erindinu í grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr 123/2010. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabilið ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið telst samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu.

  1. Glæsibær, Hagabyggð - aðal- og deiliskipulag áfangi III (2301004)

Lögð er fram, til umræðu umsögn Skipulagsstofnunar vegna beiðni um undanþágu frá skipulagsreglugerð. Eftirfarandi skilaboð bárust frá Innviðaráðuneytingu: „Ráðuneytið vill veita umsækjanda tækifæri til að bregðast við þeim sjónarmiðum sem koma fram í umsögninni áður en afstaða er tekin til beiðninnar. Óskað er eftir því að svar berist eigi síðar en 9. desember“. Frestur var gefinn til 15.desember, þannig að hægt væri að funda um málið. Tillaga hefur borist frá skipulagshönnuði, þar sem gert er ráð fyrir að lóðir verði amk 100m. frá Dagverðareyrarvegi (816) þannig að fallið hefur verið frá beiðni um undanþágu frá skipulagsreglugerð og óskað eftir að afgreiðsla skipulagsbreytingarinnar verði fullnustaðar.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að uppfærð deiliskipulags-gögn þar sem komið er á móts við athugasemd Skipulagsstofnunar verði samþykkt skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að skipulagsfulltrúa verði falið að fullnusta gildistöku skipulagsins.

  1. Fagranes L2157606 - Umsókn um leyfi til skógræktar (stækkun á leyfðu svæði) (2411010)

Fyrir fundinum liggur erindi frá Henri Middeldorp, f.h. ITF Reforestation ehf. eiganda Fagraness, þar sem óskað er eftir stækkun á framkvæmdasvæði því sem kom fram í framkvæmdaleyfi vegna skógræktar á jörðinni sem var samþykkt á fundi sveitarstjórnar þann 29. apríl 2021,. Stækkunin nemur 18,1ha, fer úr 74ha í 92,1ha. Meðfylgjandi er kort gert af „B.D“, sem sýnir breytt framkvæmdasvæði.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að fresta afgreiðslu og felur skipulagsfulltrúa að kanna heildarstærð samliggjandi skógræktarsvæða sem leyfi er fyrir í sveitar-félaginu.

  1. Bitrugerði L152463 - Umsókn um stofnun lóðarinnar Bitrugerði 3 (2411009)

Eigandi óskar eftir stofnun lóðar fyrir nýbyggingu einbýlishúss í landi Bitrugerðis L152463. Áætluð stærð byggingar er 230 m². Meðfylgjandi er uppdráttur af fyrirhugaðri lóð.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja fyrir sitt leyti stofnun lóðar samkvæmt framlögðum uppdrætti og fela skipulags- og byggingarfulltrúa að fullnusta stofnun lóðarinnar með afgreiðslu merkjalýsingar.

  1. Hafnasamlag Norðurlands - tillaga að götunöfnum á Dysnesi (2410001)

Erindi varðandi tillögu að götunöfnum á Dysnesi var frestað var á 106. fundi nefndarinnar, þann 23. október sl. Nú liggur fyrir óformlegt álit íslenskufræðings á orðinu Dys og er þess farið á leit að nefndin taki „annan snúning“ á tillögunni. ...

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að afgreiðslu verði frestað og óskað verði eftir samvinnu við eiganda svæðisins um götunöfn.

  1. Þrastarhóll 2 - umsókn um stofnun lóðar/landspildu (2411008)

Erindinu var frestað á fundi nefndarinnar þann 13.nóvember sl. Fyrir liggur umsókn um stofun lóðar/landspildu úr landi Þrastarhóls 2 (L218424).

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja fyrir sitt leyti stofnun lóðar samkvæmt framlögðum uppdrætti og fela skipulags- og byggingarfulltrúa að fullnusta stofnun lóðarinnar með afgreiðslu merkjalýsingar.

  1. Hjalteyrarvegur 13 - beiðni um breytingu frá deiliskipulagsskilmálum (2411001)

Erindi sem frestað var á síðasta fundi nefndarinnar, byggingarfulltrúa barst byggingarleyfisumsókn vegna byggingar húss að Hjalteyrarvegi 13 (L238070). Búið er að breyta hönnun byggingarinnar þannig að hún sé innan við skilgreindan byggingarreit á deiliskipulagi en byggingarmagn er ennþá meira en leyfilegt er skv. deiliskipulagi. Óskað er eftir óverulegri breytingu á deiliskipulagi vegna aukins nýtingarhlutfalls.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á deiliskipulaginu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísa erindinu í grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr 123/2010. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabilið ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið telst samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu.

  1. Glæsibær, Hagabyggð - deiliskipulag áfangi II (2412004)

Óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi á lóðarmörkum, byggingarreitum og nýtingarhlutfalli lóðanna að Hagaskógi 9 og 11. Þá er smávægilegt misræmi lóðarmarka og staðsetningar göngustígs leiðrétt.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að óveruleg
breyting á deiliskipulaginu verði samþykkt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísa erindinu í grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr 123/2010 Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabilið ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið telst samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu.

Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 10:10