125. fundur skipulags- og umhverfisnefnd
125. fundur skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar
haldinn á skrifstofu Hörgársveitar, þriðjudaginn 11. ágúst 2026 og hófst hann kl. 09:00.
Fundinn sátu:
Agnar Þór Magnússon, Bjarki Freyr Brynjólfsson, Árni Rúnar Örvarsson, Katrín Olsen Björnsdóttir, Kolbrún Lind Malmquist, Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri
Dagskrá:
1. Ytri-Bægisá 1, Ytri-Bægisá 2 og Garðshorn - framkvæmdaleyfisumsókn til malarnáms á svæði E18 - H2608006
Landeigendur Ytri-Bægisár 1, Ytri-Bægisár 2 og Garðshorns á Þelamörk sæskja um efnistöku 45.000 m³ af malarefni úr malarnámu á efnistökusvæði E18. Umsókninni fylgir afstöðumynd dags. 05.01.2026 og undirritaður samningur landeigenda um efnistökuna.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku á 45.000 m³ af malarefni úr malarnámu á efnistökusvæði E18 verði samþykkt. Skipulags- og byggingarfulltrúa verði heimilt að gefa út framkvæmdaleyfi til þriggja ára þegar Aðalskipulag Hörgársveitar 2024-2044 hefur hlotið fullnaðarafgreiðslu og tekið gildi. Uppfærður uppdráttur af námusvæðinu liggi fyrir áður en framkvæmdaleyfi verði gefið út.
Agnar Þór Magnússon og Kolbrún Lind Malmquist véku af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis og sátu Jóhanna María Oddsdóttir og Sunna María Jónasdóttir fundinn undir þessum lið í þeirra stað.
2. Deiliskipulag Lónsbakkahverfis - breytingar v. Lónsvegar 1 - 3. - H2603023
Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Lónsbakkahverfis vegna Lónsvegar 1 og 3 var auglýst skv. 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var umsagnarfrestur til 22. júlí sl. 6 umsagnir bárust á auglýsingatímabilinu og eru þær nú til umfjöllunar nefndarinnar.
1. erindi, sendandi Minjastofnun:
Umsögn: Minjastofnun Íslands gerir ekki athugasemd við fyrirhugaða breytingu á deiliskipulagi. Til er fornleifaskráning og eru engar minjar skráðar á því svæði sem deiliskipulagsbreytingin nær til. Einnig var svæðið skoðað á vettvangi af minjaverði þann 14. mars 2024.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni.
2. erindi, sendandi Landsnet:
Umsögn: Landsnet sér ekki tilefni til efnislegrar umsagnar.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni.
3. erindi, sendandi Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra:
Umsögn: Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaðar skipulagsbreytingar.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni.
4. erindi, sendandi Vegagerðin:
Umsögn: Vegagerðin bendir á að óheppilegt er fyrir umferðarstraum út úr hringtorgi að hafa margar tengingar nærri því. Ekki er skýrt hvort veghelgunarsvæði sé á uppdrætti, vantar í útskýringar.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Eftir sem áður eru þrjár tengingar á Lónsvegi innan við 100 m frá hringtorgi en við bætist ein tenging rúmlega 100 m frá hringtorginu. Vegna þessa er breytingin ekki talin hafa áhrif á umferðarstraum út úr hringtorginu. Bætt er við í skýringum tákni fyrir veghelgunarsvæði.
Umsögn: Samkvæmt vegalögum nr. 80/2007, 8. gr. enda stofn- og tengivegir við fyrstu þvergötu sem tilheyrir vegakerfi þéttbýlis. Samkvæmt því á Lónsvegur (8298) að enda sem þjóðvegur við Berghól B og mun Vegagerðin fjalla um það í sér erindi óháð deiliskipulagi.
Samkvæmt Vegalögum nr. 80/2007 er veghelgunarsvæði 30 m breitt til hvorrar handar frá miðlínu stofnvega en 15 m frá miðlínu annara þjóðvega. Framkvæmdir og mannvirki innan veghelgunarsvæðis eru ávallt háðar leyfi frá Vegagerðinni. Á það við þótt mannvirki eða framkvæmdir séu í samræmi við samþykkt skipulag. Lónsvegur uppfyllir í dag ekki skilyrði í veghönnunarreglum um lágmarksfjarlægð á milli vegamóta. Fyrirhuguð breyting fjölgar tengingum á svæði þar sem þegar er of þétt á milli vegamóta.
Gera þarf ráð fyrir breikkun Hringvegar og stækkun á hringtorgi í framtíðinni og þarf því að gæta að því að skipulag takmarki ekki möguleika á stækkun.
Æskilegt er að fjarlægðir á milli tenginga séu málsettar á uppdrætti, það á einnig við um næstu tengingar utan skipulagsreits.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skv. umsögn Vegagerðarinnar mun tengivegurinn Lónsvegur enda við fyrstu þvergötu þéttbýlisins sem er við Berghól B. Óskað var eftir frekar upplýsingum frá Vegagerðinni vegna málsins og komu fram þær upplýsingar að tengivegurinn Lónsvegur endar nú við Birkihlíð en mun nú þegar framkvæmum við hringtorg er lokið enda við fyrstu þvergötu þéttbýlisins sem er við Berghól B.
Vegna þessa á 15m veghelgunarsvæði ekki við nema á litlum hluta lóðar við Lónsveg 1 þar sem gert er ráð fyrir bílastæðum innan lóðar eins og í gildandi deiliskipulagi.
Ekki er talið að breyting á deiliskipulagi takmarki stækkun á hringtorgi í framtíðinni en samt sem áður er lóð við Lónsveg 1 minnkuð um nokkra metra þar sem hún er næst hringtorgi.
Ekki talin þörf á að málsetja fjarlægðir á milli vegtenginga þar sem Lónsvegur er ekki tengivegur nema að fyrstu þvergötu þéttbýlisins.
5. erindi, sendandi Rarik:
Umsögn: Rarik gerir ekki athugasemdir við tillöguna.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni.
6. erindi, sendandi Norðurorka:
Umsögn: Hitaveita, vatnsveita og fráveita: Á lóðum 1 og 3 er lagnakvöð. Norðurorka kemur til með að nýta kvöðina og leggja innan lóða hita-, vatns-, og fráveitu. Núverandi hitaveitulögn er innan lóðar en hún verður endurnýjuð.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Eftir sem áður er kvöð á lóðinni um lagnasvæði. Lagnakvöðin er 6 m breið frá lóðarmörkum meðfram Lónsvegi. Byggingarreitirnir tveir á lóð nr. 3 voru um 3-4 m frá lóðarmörkum en sú breyting er gerð að byggingarreitunum er hliðrað og verða 5 m frá lóðarmörkum og því er aðeins 1 m af kvaðarsvæðinu innan byggingarreita.
Umsögn: Fráveita: Vakin er athygli á að tengihæð heimæðar skólps er ekki á miklu dýpi og kann að vera takmarkandi (ráðandi) fyrir gólfhæð húsa.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni.
Umsögn: Ekki er unnt að tengja ofanvatn frá lóðunum við fráveitukerfið og því þarf lóðarhafi að leysa losun þess á annan hátt s.s. með blágrænum lausnum með tengingu við Lónsá.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Bætt er við þeim skilmálum að ekki er hægt að tengja ofanvatn frá lóðunum við fráveitukerfið og því þarf lóðarhafi að leysa losun þess á annan hátt s.s. með blágrænum lausnum með tengingu við Lónsá.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að auglýstri deiliskipulagstillögu verði breytt eins og fram kemur í afgreiðslu nefndarinnar á athugasemdum og að svo breytt skipulagstillaga verði samþykkt skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa er falið að vinna að gildistöku skipulagsins og senda það til HMS þegar uppfærð gögn berast.
3. Stórabrekka L152349 - Umsókn um byggingareit - H2606040
Landeigendur Stórubrekku L152349 sækja um byggingarreit fyrir 210-230 fermetra einbýlishús á jörðinni sbr. meðfylgjandi erindi og afstöðumynd.
Á jörðinni Stórubrekku L152349 er núna eitt íbúðarhús svo heimild er fyrir byggingarreit fyrir öðru íbúðarhúsi skv. gildandi Aðalskipulagi.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að kallað verði eftir uppdrætti með hnitsettum byggingarreit.
4. Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045 - umsagnarbeiðni (1264/2024) - H2410008
Dalvíkurbyggð óskar umsagnar Hörgársveitar um tillögu að nýju Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045 en tillagan er í auglýsingu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er umsagnarfrestur til 16. ágúst nk.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ekki verði gerðar athugasemdir við tillögu að nýju Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045.
5. Glæsibær 5 - ný lóð í landi Glæsibæjar - H2606042
Fyrir fundinum liggur ósk frá GLB17 ehf. um nýjan 990 m² byggingarreit í landi Glæsibæjar þar sem ætlunin er að byggja tvö lítil íbúðarhús þar sem hámarksstærð bygginga á reitnum yrði samtals 200 m².
Ekkert íbúðarhús er skráð á jörðinni Glæsibæ L152488 en á Glæsibæ 2, 3 og 4 eru samtals þrjú íbúðarhús á sér lóðum. Auk þess hefur landeigandi (GLB17 ehf.) skipulagt íbúðarsvæði á jörðinni.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að óskað verði eftir að lagt verði fram deiliskipulag af svæðinu eða því bætt við núverandi deiliskipulag.
6. Skógarhlíð 41 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - H2608002
Bjarki Örvar Auðbergsson sækir um stöðuleyfi fyrir um 20 feta geymslugám á norðvestur-horni lóðarinnar Skógarhlíðar 41 sbr. meðfylgjandi umsókn og afstöðumynd.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ekki verði gerðar athugasemdir við veitingu stöðuleyfis til eins árs fyrir geymslugám á norðvestur-horni lóðarinnar Skógarhlíðar 41.
7. Skógarhlíð 39 - stækkun lóðar - H2608001
Fyrir fundinum liggur erindi frá lóðarhafa Skógarhlíðar 39 þar sem óskað er eftir að lóðin verði stækkuð um 126 m² til suðurs, í samræmi við meðfylgjandi uppdrátt. Jafnframt er óskað eftir heimild til að reisa allt að 6 m² skúr á lóðinni.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að erindinu verði hafnað enda telur hún umbeðna stækkun ekki samræmast áformum um nýtingu svæðisins sem opið svæði.
8. Búland 3 L239280 - beiðni um breytta notkun íbúðarhúss - H2608004
Erindi frá eigendum Purity Herbs ehf. þar sem óskað er eftir breyttri notkun á einbýlishúsinu á Búlandi 3 þar sem því yrði breytt yfir í húsnæði fyrir starfsemi undir snyrtivöruframleiðslu.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við að starfsemi Purity Herbs ehf. verði tímabundið í húsnæðinu sem skilgreint er sem íbúðarhúsnæði. Bent er á að leita þarf samþykkis um breytta notkun húsnæðisins til byggingarfulltrúa.
9. Björg 2 L219557 - beiðni um heimild til deiliskipulagningar ferðaþjónustusvæðis, íbúðarhúss og golfvallar - H2608005
Fyrir fundinum liggur skipulagslýsing unnin af Lilium teiknistofu þar sem óskað er eftir heimild sveitarfélagsins til að breyta Aðalskipulagi og vinna nýtt deiliskipulag fyrir ferðaþjónustu á Björgum 2 L219557. Áætlað er að reisa 3 ferðaþjónustuhús með gistirými fyrir allt að 17 manns samtals, 9 holu golfvöll fyrir almenning og eitt nýtt íbúðarhús á svæðinu.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að skipulagslýsingin verði uppfærð þannig að hún taki mið af endurskoðuðu Aðalskipulagi Hörgársveitar 2024-2044 og henni verði síðan vísað í kynningu skv. 1. mgr. 30. gr. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar Aðalskipulag Hörgársveitar 2024-2044 hefur hlotið fullnaðarafgreiðslu og tekið gildi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:15