Fundargerð kjörstjórnar 7. apríl 2026
Fundargerð kjörstjórnar Hörgársveitar
Þriðjudaginn 7. apríl 2026 kl. 11:30 kom kjörstjórn Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Mætt voru: Helgi Bjarni Steinsson formaður, Viðar Þorsteinsson og María Björk Guðmundsdóttir
Fundarritari: Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri
1. Fræðslufundur Landskjörstjórnar
Landskjörstjórn hélt fræðslufund í fjarfundi og fór yfir með kjörstjórn, reglur og fyrirkomulag við móttöku framboða, notkun meðmælendakerfisins við yfirferð framboða, dreifingu kjörgagna og innleiðingu nýrra atkvæðakassa og fleira.
2. Listabókstafir
Kjörstjórn fór yfir listabókstafi stjórmálasamtaka sem auglýstir hafa verið. Kjörstjórn skal hafa þessa auglýsingu til hliðsjónar við úthlutun listabókstafa.
3. Móttaka framboða
Kjörstjórn tekur við framboðum 10.4.2026 kl. 11:00-12:00. Stefnt er fundi með umboðsmönnum kl. 13:00 þann dag um gildi framboða.
Fleira ekki bókað og fundi slitið kl. 12:55