Fundargerð kjörstjórnar 28. apríl 2026

28.04.2026 11:45

Fundargerð kjörstjórnar Hörgársveitar

Þriðjudaginn 28. apríl 2026 kl. 11:45 kom kjörstjórn Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

Mætt voru: Helgi Bjarni Steinsson formaður, Viðar Þorsteinsson, María Björk Guðmundsdóttir og Líney S Diðriksdóttir (vm).

Fundarritari: Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri

1. Fræðslufundur Landskjörstjórnar
Landskjörstjórn hélt fræðslufund í fjarfundi og fór yfir með kjörstjórn, gerð atkvæðaseðla og réttindi og skyldur umboðsmanna.

2. Fundur með umboðsmönnum
Ákveðið að halda fund með umboðsmönnum þriðjudaginn 12. maí 2026 kl. 12:30 á skrifstofu Hörgársveitar.

 

Fleira ekki bókað og fundi slitið kl. 12:40