Fundargerð kjörstjórnar 24. febrúar 2026

24.02.2026 12:00

Fundargerð kjörstjórnar Hörgársveitar

Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 kl. 12:00 kom kjörstjórn Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

Mætt voru: Helgi Bjarni Steinsson formaður, Viðar Þorsteinsson og María Björk Guðmundsdóttir

Fundarritari: Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri

1. Rásfundur Landskjörstjórnar

Landkjörstjórn hélt kynningarfund í fjarfundi og fór yfir með kjörstjórn framkvæmd sveitarstjórnarkosninga sem framundan eru 16.maí 2026.

2. Undirbúning kosninga
Kjörstjórn fór yfir ýmis mál til undirbúnings kosninga.

3. Kjörfundur
Kjörstjórn samþykkti að kjörfundur í Hörgársveit þann 16.maí 2026 verði í Þelamerkurskóla frá kl.10:00 til kl. 22:00.

4. Rafrænt meðmælakerfi
Kjörstjórn samþykkti að í Hörgársveit verði boðið uppá rafrænt meðmælakerfi frá og með 3. mars 2026. Hægt verður einnig að skila meðmælum á pappír.

5. Skil framboða
Kjörstjórn mun taka við framboðum föstudaginn 10. apríl 2026 kl. 11:00 – 12:00 á skrifstofu Hörgársveitar í Þelamerkurskóla. Í framhaldinu mun kjörstjórn funda með umboðsmönnum. Nánari upplýsingar veitir formaður kjörstjórnar.

 

Fleira ekki bókað og fundi slitið kl. 13:00