Fundagerð kjörstjórnar 12. maí 2026
Fundargerð kjörstjórnar Hörgársveitar
Þriðjudaginn 12. maí 2026 kl. 11:30 kom kjörstjórn Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Mætt voru: Helgi Bjarni Steinsson formaður, Viðar Þorsteinsson, María Björk Guðmundsdóttir og Líney S Diðriksdóttir (vm).
Fundarritari: Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri
1. Fræðslufundur Landskjörstjórnar
Landskjörstjórn hélt fræðslufund í fjarfundi og fór yfir með kjörstjórn, flokkun og talningu atkvæða og talningaskýrslur.
2. Fundur með umboðsmönnum
Kl. 12:30 komu umboðsmenn framboðslista á fund kjörstjórnar til að fara yfir fyrirkomulag kosninga og talningar með kjörstjórn.
Mættir voru:
Pálmi Þorgeir Jóhannsson, D-lista
Halldór Lind Guðmundsson, G-lista
Jónas Sigurðsson, G-lista
Friðþjófur Sigurðsson, H-lista
Hannes Valur Gunnlaugsson, H-lista
Fleira ekki bókað og fundi slitið kl. 13:05