Fræðslunefnd Hörgársveitar fundur nr. 57
Mánudaginn 29. september 2025 kl.16:30 kom fræðslunefnd Hörgársveitar saman til fundar í leikskólanum Álfasteini.
Fundarmenn voru, Jóhanna María Oddsdóttir formaður, Sigurbjörg L Auðbjörnsdóttir varaformaður og Ásgeir Már Andrésson fulltrúar í nefndinni og auk þeirra, Hugrún Ósk Hermannsdóttir leikskólastjóri Álfasteini, Anna Rósa Friðriksdóttir skólastjóri Þelamerkurskóla, Sigríður Gréta Þorsteinsdóttir fulltrúi starfsmanna Álfasteini, Eva Hilmarsdóttir fulltrúi foreldra Álfasteini, Halla Björk Þorláksdóttir fulltrúi kennara Þelamerkurskóla og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
Málefni Þelamerkurskóla:
1. Skýrsla skólastjóra, skólastarfið í upphafi
Í máli skólastjóra kom m.a. fram að nemendur eru nú 109 í átta námshópum. Starfsmenn eru 32 í 27,1 stöðugildi. Skólastjóri fór yfir starfsmannamál, stjórnendateymi, fagráð og nefndir.
Umræða var um Frístund á föstudögum og hugsanlegar breytingar um áramót um lágmarksfjölda.
2. Starfsáætlun lögð fram til kynningar
Skólastjóri lagði fram starfsáætlun til kynningar. Þar kemur m.a. fram að innleiðing endurskoðaðrar aðalnámskrár stendur yfir í vetur. Vinnu á að vera lokið í ágúst 2026 og því verða námsáætlanir, námsmarkmið og hæfnikort í mentor í stöðugri þróun. Stofnað hefur verið innleiðingarráð en í því sitja stjórnendur og 2 reynslumiklir kennarar. Umræða um námsmat og framvindupróf Matsferlis.
3. Starfsþróunaráætlun 2025-2026 lögð fram til kynningar
Skólastjóri lagði fram starfsþróunaráætlun til kynningar. Megin áherslan þar er innleiðing aðalnámskrár, fundir með teymum og leiðtogum, byrjendalæsi, tæknilausnir og nýsköpun og farsæld barna.
4. Áætlun um innra mat kynnt
Skólastjóri lagði fram áætlun um innra mat 2025-2026. Þar er m.a. gert ráð fyrir matsferlum leiðsagnarnámi og teymiskennsluvinnu með MSHA, fræðslu og stuðningi frá MSHA, áherslu á jafningjastuðning og samvinnu, nemendakönnun Skólapúls að hausti, foreldrakönnun Skólapúls að vori, starfmannakönnun Skólapúls að vori, starfmannasamtöl, teymisvinnu, bekkjarfundi, einstaklings samtöl o.fl.
5. Heilsulæsi tilraunaverkefni
Skólastjóri kynnti tilraunaverkefnið heilsulæsi í grunnskólum sem Þelamerkurskóli tekur þátt í.
6. Framkvæmdir, nýting húsnæðis og nemendaspá
Farið var yfir þær framkvæmdir sem gerðar hafa verið á árinu og það sem framundan er á næsta ári. Farið var yfir áætlaða þróun á fjölda nemenda sem gerir m.a. ráð fyrir að nemendur verði orðnir 134 haustið 2028.
Sameiginleg málefni:
7. Úrræði fyrir tilvonandi grunnskólanemendur 2026
Rætt var um frístundaúrræði fyrir tilvonandi grunnskólanemendur í framtíðinni.
Fræðslunefnd leggur til við sveitarstjórn að stofnaður verði starfshópur fræðslunefndar, leikskóla og grunnskóla sem verði falið að koma með tillögur í málinu.
Málefni Álfasteins:
8. Skýrsla leikskólastjóra, starfið framundan – börn og starfsmenn tölur og fleira
Fram kom m.a. í skýrslu leikskólastjóra að börn verða 91 um áramót, starfsmenn verða 32 í 27,5 stöðugildum. Farið yfir afleysingar m.a. í veikindaforföllum. Kynnt var starfsemi hjá teymum sem starfrækt eru í leikskólanum. Skólanámskrá er í endurskoðun.
9. Starfsmannamál
a. Skilgreining á prósentuhlutfalli aðstoðarleikskólastjóra
Rætt var um þörf fyrir að auka starfshlutfall aðstoðarleikskólastjóra sem er 37,5% í 50% starf.
b. Stuðningur við stjórnendur
Rætt var um stuðning við stjórnendur, helst í starfsmannamálum.
c. Afleysingarprósenta vegna veikinda og sumarfría
Farið yfir þörf á að auka starfshlutfall vegna afleysingu sumarfría og veikinda.
10. Starfsáætlun 2025 – 2026 lögð fram
Leikskólastjóri lagði fram starfsáætlun Álfasteins 2025-2026.
11. Niðurstöður innra mats 2024 til 2025
Leikskólastjóri fór yfir niðurstöður innra mats 2024-2025 þar sem m.a. kom fram að í gæðaviðmiðum Álfasteins eru flestir eða allir þættir sterkir. Mjög gott verklag er sem samræmist fyllilega lýsingu um gæðastarf.
Fundi slitið kl. 19:00