Fræðslunefnd fundur nr. 61

09.09.2026 08:15

Fræðslunefnd Hörgársveitar

61. fundur

Fundargerð

Miðvikudaginn 9. september 2026 kl.08:15 kom fræðslunefnd Hörgársveitar saman til fundar í Þelamerkurskóla.

Fundarmenn voru, Jóhanna María Oddsdóttir formaður, Sveinn Brimar Jónsson, Ásta G. Hafberg, Jóhanna Margrét Gunnarsdóttir og Pálmi Þorgeir Jóhannsson fulltrúar í nefndinni og auk þeirra, Hugrún Ósk Hermannsdóttir leikskólastjóri Álfasteini, Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir skólastjóri Þelamerkurskóla, Sigríður Gréta Þorsteinsdóttir fulltrúi starfsmanna Álfasteini, Lilja Dögg Guðnadóttir fulltrúi foreldra Álfasteini, Bryndís Gunnarsdóttir fulltrúi kennara Þelamerkurskóla, Margrét Sverrisdóttir fulltrúi foreldra Þelamerkurskóla og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.

 

Þetta gerðist:

Málefni Þelamerkurskóla:

1. Skýrsla skólastjóra
Fram kom í máli skólastjóra að nemendur eru nú 121 og hefur fjölgað um 11% milli ára. Enn er samkennsla að litlu leyti en hún er að falla út. Í frístund eru um 30 börn. Búið er að ráða í allar stöður utan einnar en nokkrar mannabreytingar urðu í haust.

2. Starfsáætlun Þelamerkurskóla 2026 - 2027
Starfsáætlun lögð fram til kynningar.

3. Fyrirhugaðar breytingar á birtingu námsmats
Kynntar breytingar sem ákveðnar hafa verið af Barna- og menntamálaráðuneyti um birtingu námsmats.

4. Undanþága frá skólasókn vegna íþróttaæfinga
Til upplýsinga var farið yfir þær reglur sem gilda varðandi leyfi til íþróttaæfinga sem hefjast áður en formlegum skóladegi lýkur.

5. Framkvæmdir og ný rými - þróun í nemendafjölda og næstu skref
Skólastjóri fór yfir þær breytingar sem orðið hafa á húsnæði skólans við stækkun. Farið var yfir áætlaða þróun nemendafjölda en gert er t.d. ráð fyrir að haustið 2027 verði nemendur 134 og yfir 160 nemendur 2030 miðað við stöðuna eins og hún er núna. Rætt um framtíðarmöguleika varðandi stækkun á húsnæði og fram kom að vinna er hafin varðandi framtíðarmöguleika í húsnæðismálum.

6. Námsvist í skemmri tíma
Rætt um hvort heimila eigi skammtíma námsvist barna úr öðrum sveitarfélögum.

7. Skólaakstur
Rætt um skólaakstur og öryggiskröfur sem þar eru gerðar.

Sameiginleg málefni:

8. Menntastefna Hörgársveitar
Kynnt var menntastefna Hörgársveitar sem gildi tók á þessu ári eftir endurskoðun.

9. Fundardagar fræðslunefndar
Formaður lagði til fundardaga fyrir næstu tvo fundi fræðslunefndar.

Málefni Álfasteins:

10. Skýrsla leikskólastjóra
Í máli leikskólastjóra kom fram að 85 börn eru í vetur í leikskólanum. Farið yfir barnafjölda í hverjum árgangi og stöðuna með að taka inn börn á næsta ári. Ekki stefnir í að börn verði tekin inn í leikskólann frá nóv. 2026 til ágúst 2027. Starfsmenn eru 30 í 27 stöðugildum. Talsvert hefur verið um veikindi og því hefur verið nauðsynlegt að ráða inn afleysingarstarfsmenn.

11. Starfsáætlun Álfasteins 2026 - 2027
Starfsáætlun lögð fram til kynningar.

12. Innramatsskýrsla 2026
Lögð var fram matsskýrsla um innra mat með umbótaáætlun.

13. Skýrsla vegna þátttöku Álfasteins í verkefninu “Notkun barnabóka í leikskólastarfi”
Leikskólastjóri kynnti skýrsluna og ánægju með starfið í Álfasteini sem þar kemur fram.

14. Námsmannaafsláttur – reglur til endurskoðunar
Farið yfir reglurnar eins og þær eru í dag. Ákveðið að yfirfara reglurnar í tengslum við gjaldskrárbreytingar í komandi vinnu við fjárhagsáætlun.

15. Námsstefna SHL og aðalfundur í september
Leikskólastjóri kynnti atburðinn sem er samstarf heilsuleikskóla og er námsstefnan nú í umsjón Álfasteins.

16. Framkvæmdir og viðhald Álfasteins
Farið var yfir þörfina fyrir frekari framkvæmdir og viðhald á húsnæði leikskólans og nauðsyn þess að viðhaldsþjónusta verði aukin. Fram kom að vinna er hafin við skoðun á möguleikum til framtíðar.

17. Breytingar á leikskólakerfi
Fram kom að verið er að leggja niður leikskólakerfið Karellen og Vala verður tekin í notkun um áramót.

Fundi slitið kl. 10:40