Fræðslunefnd fundur nr. 60
Mánudaginn 27. apríl 2026 kl.08:30 kom fræðslunefnd Hörgársveitar saman til fundar í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn voru, Jóhanna María Oddsdóttir formaður, Sigurbjörg L Auðbjörnsdóttir og Ásgeir Már Andrésson fulltrúar í nefndinni og auk þeirra, Hugrún Ósk Hermannsdóttir leikskólastjóri Álfasteini, Anna Rósa Friðriksdóttir skólastjóri Þelamerkurskóla, Sigríður Gréta Þorsteinsdóttir fulltrúi starfsmanna Álfasteini, Lilja Dögg Guðnadóttir fulltrúi foreldra Álfasteini, Anna Rós Finnsdóttir fulltrúi kennara Þelamerkurskóla, Magnús Jón Árnason fulltrúi foreldra Þelamerkurskóla og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
Sameiginleg málefni:
1. Menntastefna Hörgársveitar
Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir fór yfir drög að menntastefnu Hörgársveitar.
Drög að menntastefnu Hörgársveitar lögð fram.
Fræðslunefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að menntastefna Hörgársveitar verði samþykkt.
2. Skóladagatal Álfasteins 2026 –2027
Lögð fram tillaga að skóladagatali.
Fræðslunefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að skóladagatal leikskólans Álfasteins 2026-2027 verði samþykkt eins og það liggur fyrir.
3. Skóladagatal Þelamerkurskóla 2026 –2027
Lögð fram tillaga að skóladagatali.
Fræðslunefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að skóladagatal Þelamerkurskóla 2026-2027 verði samþykkt eins og það liggur fyrir.
Málefni Þelamerkurskóla:
4. Skýrsla skólastjóra
a) Nemendafjöldi
Fram kom í máli skólastjóra að gert er ráð fyrir að 121 nemandi verði í skólanum í upphafi næsta skólaárs.
b) Starfsmannamál
Skólastjóri fór yfir starfsmannamál og kom meðal annars fram að talsverð breyting verður á starfsmannahópnum frá hausti og auka þurfi um eina stöðu í kennslu yngsta aldurshópsins. Einnig kom fram að aukið verður við list- og verkgreinakennslu vegna fjölgunar. Þá kom fram að auka þurfi starfshlutfall í þrifum með stærra húsnæði.
5. Sumarfrístund verðandi 1. bekkinga
Skólastjóri fór yfir ráðningar og fyrirkomulag á sumarfrístund sem verður í Þelamerkurskóla 10.8. - 21.8. 2026 kl. 08:00 - 13.00 virka daga.
6. Skólapúls niðurstöður: nemendakönnun og foreldrakönnun
Kynntar voru niðurstöður nemendakönnunar sem voru almennt góðar og var svarhlutfall mjög gott. Fram kom í svörum að mikill munur er eftir kynjum. Þá var farið yfir foreldrakönnun sem gerð var og þar var svarhlutfall líka mjög gott. Almennt voru svör afar jákvæð og svörun marktækt yfir landsmeðaltali á langflestum matsþáttum.
7. Styrkur frá Lýðheilsusjóði og forystuhlutverk skólans á næsta skólaári
Þelamerkurskóli hlaut styrk frá Lýðheilsusjóði vegna innleiðingar heilsulæsis í grunnskólum. Þelamerkurskóli hefur einnig tekið að sér að leiða þetta verkefni á landsvísu og verður forystuskóli í innleiðingu á heilsulæsi í grunnskólum. Íþróttakennarar munu leiða það verkefni ásamt verkefnastjórum frá embætti landlæknis. Nýverið hlaut Þelamerkurskóli veglegan styrk frá endurmenntunarsjóði grunnskóla til heilsueflingar starfsfólks á næsta skólaári.
8. Vel heppnuð árshátíð
Kynnt var að árshátíð skólans hafi gengið frábærlega.
Málefni Álfasteins:
9. Skýrsla leikskólastjóra
a) Fjöldi barna og starfsmanna haust 2026
Fram kom hjá leikskólastjóra að fjöldi barna er nú 89 og nú stefnir í að börnin verði 93 sem eru á leikskólaaldri í upphafi næsta árs. Starfsmenn eru 30.
b) Nýráðningar og fleira
Leikskólastjóri fór yfir breytingar sem verða á starfsmannahópnum á næstunni.
10. Niðurstöður starfsánægjukönnunar
Kynntar voru niðurstöður könnunar og var svarhlutfall gott. Niðurstöður almennt jákvæðar og umfram landsmeðaltal.
11. Inntökureglur – innritun starfsmannabarna - tímasetningar á úthlutunum leikskólaplássa.
Rætt um breytingar á reglum um meðferð umsóknar um leikskóladvöl.
Fræðslunefnd samþykkti að fela leikskólastjóra og formanni fræðslunefndar að koma með tillögu á endurskoðuðum reglum.
12. Aukasumarfrí – afsláttur
Rætt um að hafa sama hátt á eins og á síðasta ári og var það ákveðið að svo verði.
13. Vala í stað Karellen leikskólakerfis
Leikskólastjóri kynnti um breytingar á kerfum.
14. Niðurstöður foreldrakönnunar
Kynntar voru niðurstöður könnunar og var svarhlutfall gott. Niðurstöður almennt jákvæðar í flestum matsþáttum og umfram landsmeðaltal.
Fundi slitið kl. 11:40