Fræðslunefnd fundur nr. 59

10.02.2026 14:00

Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 kl.14:00 kom fræðslunefnd Hörgársveitar saman til fundar í Álfasteini.

Fundarmenn voru, Jóhanna María Oddsdóttir formaður, Sigurbjörg L Auðbjörnsdóttir og Sunna María Jónasdóttir (vm) fulltrúar í nefndinni og auk þeirra, Hugrún Ósk Hermannsdóttir leikskólastjóri Álfasteini, Anna Rósa Friðriksdóttir skólastjóri Þelamerkurskóla, Sigríður Gréta Þorsteinsdóttir fulltrúi starfsmanna Álfasteini, Jóhanna Margrét Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra Álfasteini, Halla Þorláksdóttir fulltrúi kennara Þelamerkurskóla, Inga Bryndís Bjarnadóttir fulltrúi foreldra Þelamerkurskóla og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

Málefni Álfasteins:

1. Skýrsla leikskólastjóra
a) Fjöldi barna
Fram kom hjá leikskólastjóra að nú er 91 barn í leikskólanum og eru 16 til 19 börn í árgangi.

b) Starfsmannamál
Leikskólastóri fór yfir starfsmannamál þar sem m.a. kom fram að um langtímaveikindi er ræða hjá þremur starfsmönnum og því er um afleysingar og ráðningar að ræða til að mæta þeim.

c) Starfið með börnunum
Farið var yfir starfið í leikskólanum þar sem m.a. kom fram að það hafi gengið vel.

2. Mat á starfi leikskólans
Leikskólastjóri kynnti rannsókn á vegum HA um hvernig barnabækur eru notaðar í leikskólum. Álfasteinn mun verða tilraunaskóli og fá mat á stöðunni í lokin.

3. Áætluð staða haustið 2026
Farið yfir áætlun um stöðu mála haustið 2026 þar sem fram kom að 19 börn fara í grunnskóla í sumar og eins staðan er í dag er gert ráð fyrir 83 börnum í haust.

4. Afleysingar
Leikskólastóri fór yfir skipulag afleysinga vegna orlofs og veikindadaga.

5. Fyrstu drög að skóladagatali 2026-2027
Lögð fram fyrstu drög að skóladagatali leikskólans Álfasteins 2026-2027.

Sameiginleg málefni:

6. Foreldrafræðsla Jákvæðs aga
Kynnt var að fræðsla verði fyrir foreldra beggja skóla í Jákvæðum aga þann 25.febrúar n.k.

7. Sumarfrístund 2026
Umræður um starfsemi sumarfrístundar fyrir börn sem eru að ljúka leikskóladvöl og eru að fara í 1. bekk grunnskóla.

Málefni Þelamerkurskóla:

8. Skýrsla skólastjóra

a) Starfsmannamál
Skólastjóri fór yfir starfsmannamál þar sem m.a. kom fram að breytingar hafa nokkrar orðið í starfsmannamálum en búið er að ráða í allar stöður.

b) Læsir
Skólastjóri kynnti lestrarapp sem heitir Læsir og hefur verið tekið í notkun sem tilraunaverkefni.

c) Nemendafjöldi - nemendaspá.
Lögð fram nemendaspá næstu ára þar sem m.a. kom fram að áætlað er að 120 nemendur verði í haust og fjölgi áfram og verði árið 2030 allt að 160.

d) Kannanir
Foreldrakönnun skólapúlsins stendur yfir o
g búið er að leggja fyrir nemendakönnun. Íslenska æskulýðsrannsóknin fyrir 4. – 10. bekk verður lögð fyrir á næstu dögum.

9. Drög að skóladagatali 2026-2027 lögð fram
Lögð fram fyrstu drög að skóladagatali Þelamerkurskóla 2026-2027.

10. Framkvæmdir við skólahúsnæði
Farið var yfir stöðu mála varðandi framkvæmdir við skólahúsnæði Þelamerkuskóla.

11. Árshátíð
Árshátíð skólans verður 26. mars kl. 15:30 í íþróttahúsinu.

Fundi slitið kl. 16:10