Fræðslunefnd fundur nr. 58
Mánudaginn 24. nóvember 2025 kl.08:30 kom fræðslunefnd Hörgársveitar saman til fundar í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn voru, Jóhanna María Oddsdóttir formaður, Sigurbjörg L Auðbjörnsdóttir varaformaður og Ásgeir Már Andrésson fulltrúar í nefndinni og auk þeirra, Hugrún Ósk Hermannsdóttir leikskólastjóri Álfasteini, Anna Rósa Friðriksdóttir skólastjóri Þelamerkurskóla, Sigríður Gréta Þorsteinsdóttir fulltrúi starfsmanna Álfasteini, Lilja Dögg Guðnadóttir fulltrúi foreldra Álfasteini, Margrét Magnúsdóttir fulltrúi kennara Þelamerkurskóla, Margrét Sverrisdóttir fulltrúi foreldra Þelamerkurskóla og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
Málefni Þelamerkurskóla:
1. Starfsmannamál
Skólastjóri fór yfir breytingar á starfsmannamálum en einn kennari lét af störfum og búið er að ráða í stöðuna. Tveir kennarar eru að fara í fæðingarorlof og verið er að ráða í afleysingar.
2. SVÓT greining starfsfólks vegna endurskoðunar skólastefnu
Farið yfir svör þar sem starfsfólk svaraði greiningu varðandi styrk, veikleika, ógnir og tækifæri í breyttu umhverfi stækkandi skóla.
3. Þemavika
Þemavika var um miðjan nóvember og var þemað heilsa, réttindi og raddir barna. Þemavikan tókst mjög vel og í lok vikunnar var opið hús sem var mjög vel sótt.
4. Matsferlill – stöðu og framvindupróf
Skólastjóri skýrði frá að stöðu- og framvindupróf verði lögð fyrir í mars 2026.
5. Samstarf við nærsamfélagið
Á skólaráðsfundi kom fram mikill vilji og áhugi á að virkja samstarf skóla og nærsamfélags t.d. við Félag eldri borgara. Þetta á vitaskuld líka við samstarf þessara aðila við leikskóla.
Sameiginleg málefni:
6. Tillaga að gjaldskrám 2026
Lögð var fram tillaga að breytingum á gjaldskrám Álfasteins og Þelamerkurskóla.
Fræðslunefnd samþykkti breytingar á gjaldskrám fyrir sitt leyti með þeim breytingum sem ákveðnar voru á fundinum.
7. Tillaga að fjárhagsáætlun 2026
Farið var yfir þær tillögur sem fyrir liggja varðandi tillögu að fjárhagsáætlun 2026 vegna Álfasteins og Þelamerkurskóla og varða rekstur, viðhald og fjárfestingar.
Fræðslunefnd samþykkti áætlunina fyrir sitt leyti.
8. Endurskoðun skólastefnu Hörgársveitar
Kynnt var endurskoðun á skólastefnunni sem í gangi er. Stefnt er að íbúafundi í janúar.
Málefni Álfasteins:
9. Skýrsla leikskólastjóra
Í skýrslu leikskólastjóra kom fram að vel gengur í vinnu með börnin og t.d. er verið að vinna með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Fram kom að ásókn í daglegan lengri vistunartíma hefur aukist.
10. Starfsmannamál
Leikskólastjóri sagði frá því að óvenju mikil veikindi hafi verið hjá starfsfólki. Búið er að ráða í afleysingar til að mæta langtíma veikindaleyfum.
11. Breytingar á dvalartíma
Ákveðið var að frá næstu áramótum verði settar reglur um fastan vistunartíma sem gildir í ákveðinn tíma.
Fundi slitið kl. 10:20