Fjallskilanefnd, fundur nr. 5 - 2007

08.11.2007 00:00

Fimmtudagskvöldið 8. nóvember 2007 kom fjallskilanefnd Hörgárbyggðar saman til fundar á Staðarbakka mættir: Guðmundur Skúlason, Aðalsteinn H Hreinsson, Stefán L Karlsson og Helgi Steinsson oddviti.

 

     Eftirfarandi bókað á fundinum:

 

1. Skrifað undir fundargerð síðasta fundar.

 

2. Almenn umræða um göngurnar á síðastliðnu hausti. Þær gengu víðast vel, nema þar sem verið var að ganga fyrstu göngur 12. 13. og 16. september, þá lentu menn í slyddu og snjókomu til fjalla, þannig að sýni var slæmt og því talsvert eftir af fé, en þar gekkst vel í seinni göngum. Þar sem átti að ganga aðrar göngur 23. september var þeim frestað vegna veðurs. Samvinna við Akrahrepp um göngur fremst í Öxnadal og á Hörgárdalsheiði gekk mjög vel.

 

3. Farið var yfir þann fjárfjölda sem kom fyrir utan heimasveitar í haust. Úr Akrahreppi komu fyrir í Öxnadal um 340 kindur og í Hörgárdal um 200 kindur. Þetta er fyrir utan það fé, sem rekið var vestur af Hörgárdalsheiði og fremstu svæðum Öxnadals. Úr Hörgárbyggð komu fyrir í Silfrastaðarétt 8 kindur. 5 úr Öxnadal og 3 kindur úr Hörgárdal. Úr Eyafjarðarsveit komu 24 kindur fyrir í Hörgárbyggð, en þaðan kom engin kind úr Hörgárbyggð.

 

4. Umræður um gangnarof. Fjallskilanefnd barst bréf dagsett 6. sept. undirritað af Þóroddi Sveinssyni f.h. umráðenda Möðruvalla 1 og 2. Þar sem tilkynnt er að þaðan verði ekki sendir menn í þau tvö gangnadagsverk sem á jarðirnar voru lögð, en þess farið á leit við nefndina að hún útvegi menn í göngurnar.  Þá vantaði einn gangnamann frá Steinsstöðum 2 og annan frá Hrauni ehf. Ráðnir voru menn í öll þessi 4 dagsverk og búið er að greiða þeim úr sveitarsjóði.

 

5. Tekin var fyrir endurskoðun á vinnureglum fjallskilanefndar og ákveðið að leggja til breytingu í 1. lið. Fellt verði út upphaf greinarinnar aftur að þar sem segir...„ Brot úr milljón sem nýtist ekki“… En í staðinn komi: „Haustið 2007 var lagt á 1 gangnadagsverk fyrir hverja milljón í fasteignamati óræktaðs lands, sem er í eigu og/eða leigu sama aðila. Upphæð þessi taki árlega breytingu í sama hlutfalli og fasteignamat óræktaðs lands“.

 

6. Tekið var fyrir bréf frá Landbúnaðarstofnun, dagsett 22. október 2007. Gerð voru drög að svarbréfi, sem lagt verður fyrir næsta sveitarstjórnarfund.

 

Fleira ekki bókað og fundi slitið kl. 01:00.