Fjallskilanefnd fundur nr. 40

18.08.2025 20:00

Mánudaginn 18.ágúst 2025 kl. 20:00 kom fjallskilanefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

Fundarmenn: Arnar Ingi Tryggvason formaður, Jónas Þór Jónasson varaformaður, Egill Már Þórsson, Davíð Jónsson og Agnar Þór Magnússon nefndarmenn og Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

 

Þetta gerðist:

1. Álagning gangnadagsverka
Lögð fram drög að álagningu fjallskila haustið 2025. Nefndin fór yfir drögin og gerði á þeim breytingar. Heildarfjöldi gangnadagsverka er 454 Samkvæmt síðustu forðagæsluskýrslu er alls um að ræða 6.608 kindur, sem er fækkun um 57 frá fyrra ári. Meðaltalsfjöldi kinda í dagsverki er því 14,5.
Fjallskilanefnd samþykkti framlögð drög að álagningu fjallskila haustið 2025, með þeim breytingum sem gerðar voru á þeim á fundinum.

2. Undanþága frá fjallskilum
Samkvæmt fjallskilasamþykkt er hverri fjallskiladeild heimilt að veita þeim, sem hafa fé sitt í sauðheldum girðingum sumarlangt, undanþágu frá fjallskilum að hluta eða öllu leyti.
Fjallskilanefnd samþykkti að í ár verði ekki veitt undanþága frá fjallskilum.

3. Viðhald fjárrétta
Rætt um stöðu mála varðandi ásigkomulag og viðhald fjárrétta.

 

Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 21:25