Fjallskilanefnd fundur nr. 39

09.06.2025 20:00

Mánudaginn 9. júní 2025 kl. 20:00 kom fjallskilanefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Arnar Ingi Tryggvason formaður, Jónas Þór Jónasson varaformaður, Davíð Jónsson, Egill Már Þórsson og Agnar Þór Magnússon nefndarmenn og Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Framkvæmd gangna 2024
Farið yfir framkvæmd gangna 2024.

2. Tímasetning gangna 2025
Fjallskilanefnd ræddi um tímasetningu gangna haustið 2025 og fyrirkomulag fjallskila.
Fjallskilanefnd samþykkti að fyrstu göngur haustið 2025 verði víðast hvar frá miðvikudeginum 10. september til sunnudagsins 14. september og að aðrar göngur verði víðast hvar viku síðar. Gengið verði á Þorvaldsdal, Illagilsdal og Auðbrekkufjall laugardaginn 6. september. Frávik frá þessum dagsetningum ef til koma, verða kynnt tímanlega. Akureyrarbæ, Dalvíkurbyggð og Skagafirði verði kynntar þessar tímasetningar.

3. Ný rétt í Glæsibæjardeild í Grjótgarði
Rætt var um staðsetningu og gerð á nýrri rétt í Glæsibæjardeild í Grjótgarði.

4. Dagsetningar á upprekstri og viðhald girðinga
Rætt var um að setja dagsetningar á heimild til upprekstrar að vori. Framvegis verði viðmiðunardagsetning 1. júní nema að fjallskilanefnd ákveði annað.

 

Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 21:30