Fjallskilanefnd 42. fundur

17.08.2026 20:00

Mánudaginn 17.ágúst 2026 kl. 20:00 kom fjallskilanefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

Fundarmenn: Arnar Ingi Tryggvason formaður, Egill Már Þórsson, Davíð Jónsson, Agnar Þór Magnússon og Björgvin Helgason nefndarmenn og Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

 

Þetta gerðist:

1. Álagning gangnadagsverka
Lögð fram drög að álagningu fjallskila haustið 2026. Nefndin fór yfir drögin og gerði á þeim breytingar. Heildarfjöldi gangnadagsverka er 458. Samkvæmt síðustu forðagæsluskýrslu er alls um að ræða 6.679 kindur, sem er fjölgun um 71 frá fyrra ári. Meðaltalsfjöldi kinda í dagsverki er því 14,6.

Fjallskilanefnd samþykkti framlögð drög að álagningu fjallskila haustið 2026, með þeim breytingum sem gerðar voru á þeim á fundinum.

2. Viðhald fjárrétta

Rætt um stöðu mála varðandi ásigkomulag og viðhald fjárrétta.

3. Rimlahlið og fjárgirðing á Öxnadalsheiði

Fjallskilanefnd beinir því til Hörgársveitar og Sveitarfélagsins Skagafjarðar að knúið verði á með það við Vegagerðina að komið verði niður rimlahliði hið allra fyrsta þar sem búið var að leggja til að það yrði staðsett. Sveitarfélögin fari í framhaldinu sameiginlega og í beinu framhaldi að koma þar niður girðingu út frá rimlahliðinu.

 

Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 22:05