Fjallskilanefnd 41. fundur

03.07.2026 09:30

Fjallskilanefnd Hörgársveitar

41. fundur

Fundargerð

Föstudaginn 3. júlí 2026 kl. 09:30 kom fjallskilanefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

Fundarmenn: Arnar Ingi Tryggvason formaður, Agnar Þór Magnússon, Davíð Jónsson, Egill Már Þórsson og Björgvin Helgason nefndarmenn og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

 

Þetta gerðist:

1. Framkvæmd gangna 2025
Farið yfir framkvæmd gangna 2025.

2.Tímasetning gangna 2026
Fjallskilanefnd ræddi um tímasetningu gangna haustið 2026 og fyrirkomulag fjallskila.
Fjallskilanefnd samþykkti að fyrstu göngur haustið 2026 verði víðast hvar frá miðvikudeginum 9. september til sunnudagsins 13. september og að aðrar göngur verði víðast hvar viku síðar. Gengið verði á Þorvaldsdal, Illagilsdal og Auðbrekkufjall laugardaginn 5. september. Frávik frá þessum dagsetningum ef til koma, verða kynnt tímanlega. Akureyrarbæ, Dalvíkurbyggð og Skagafirði verði kynntar þessar tímasetningar.

3. Viðhald fjárrétta
Rætt um nauðsyn á frekari viðhaldi fjárrétta.

4. Önnur mál
Rætt var um að upprekstrarmál.

 

Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 09:45