Félagsmála- og jafnréttisnefnd fundur nr. 24

25.11.2025 16:00

Þriðjudaginn 25. nóvember 2025 kl. 16:00 kom félagsmála- og jafnréttisnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

Fundarmenn: Sunna María Jónasdóttir formaður, Jóhanna María Oddsdóttir og Erla Björk Helgadóttir í félagsmála- og jafnréttisnefnd og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Fjárhagsáætlun 2026
Lögð fram og rædd tillaga að fjárhagsáætlun 2026 fyrir málaflokk 02 félagsþjónusta.
Félagsmála- og jafnréttisnefnd samþykkti áætlunina fyrir sitt leyti.

2. Málefni fatlaðs fólks
Umræður um rekstur málaflokksins.

3. Fjölskylduþjónusta Norðurlands eystra, þátttaka í verkefninu.
Lagt erindi um verkefnið og þátttöku í kostnaði vegna þess.
Félagsmála- og jafnréttisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að Hörgársveit taki þátt í verkefninu og að taka þátt í kostnaði vegna þess í samræmi við íbúafjölda sveitarfélagsins.

 

Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 16:50