Félagsmála- og jafnréttisnefnd, fundur nr. 14
Félagsmála- og jafnréttisnefnd Hörgársveitar
14. fundur
Fundargerð
Miðvikudaginn 14. nóvember 2018 kl. 16:00 kom félagsmála- og jafnréttisnefnd Hörgársveitar saman til fundar í skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Andrea R. Keel formaður, Kristbjörg María Bjarnadóttir og Bragi Konráðsson (vm) í félagsmála- og jafnréttisnefnd og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
1. Fjárhagsáætlun 2019
Lögð fram og rædd tillaga að fjárhagsáætlun 2019 fyrir málaflokk 02 félagsþjónusta.
2. Stefna og framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar
Lagt fram og rætt erindi frá Barnaverndarnefnd Eyjafjarðar þar sem kynnt er stefna og framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar tímabilið 2018-2022.
3. Leiguhúsnæði
Rætt var um þörfina fyrir leiguhúsnæði í sveitarfélaginu og þá möguleika sem eru framundan í þeim málum.
Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 16:45