Félagsmála- og jafnréttisnefnd, fundur nr. 10
Félagsmála- og jafnréttisnefnd Hörgársveitar
10. fundur
Fundargerð
Miðvikudaginn 9. mars 2016 kl. 15:00 kom félagsmála- og jafnréttisnefnd Hörgársveitar saman til fundar í skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Bragi Konráðsson, Andrea R. Keel og Ingibjörg Stella Bjarnadóttir í félagsmála- og jafnréttisnefnd og Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
1. Jafnréttisáætlun fyrir Hörgársveit 2014-2018
Lögð fram drög að jafnréttisáætlun fyrir Hörgársveit 2014-2018.
Farið var yfir drögin.
Félagsmála- og jafnréttisnefnd samþykkti fyrir sitt leyti framlögð drög að jafnréttisáætlun fyrir Hörgársveit 2014-2018 og leggur til við sveitarstjórn að þau verði tekin sem fyrst til afgreiðslu og staðfestingar.
2. Jafnrétti í sveitarfélögum. Málþing í Reykjavík 31. mars og námskeið 1. apríl 2016.
Lagt fram erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem boðað er til málþings og námskeiðs 31. mars og 1. apríl n.k. í Reykjavík undir yfirskriftinni „Jafnrétti í sveitarfélögum“.
3. Önnur mál
Farið yfir ýmis mál er tengjast félagsmálefnum í sveitarfélaginu og úrlausnum þeim tengdum.
Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 15.25