Atvinnu- og menningarnefnd fundur nr. 36

04.05.2026 17:00

36. fundur Atvinnu- og menningarnefndar var haldinn á skrifstofu Hörgársveitar, mánudaginn 4. maí 2026 og hófst hann kl. 17:00.

Fundinn sátu:

Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir, Vignir Sigurðsson, Jóhanna María Oddsdóttir, Jónas Þór Jónasson, Ásrún Árnadóttir og Kolbrún Lind Malmquist.
Fundargerð ritaði: Kolbrún Lind Malmquist, Verkefnastjóri.

1. Kveldúlfur 2026 - H2604039
Lagt er fram erindi vegna tónlistarhátíðarinnar Kveldúlfs á Hjalteyri, þar sem sótt er um styrk til framkvæmdar hátíðarinnar í ágúst 2026.
Atvinnu- og menningarnefnd tekur jákvætt í erindið og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja styrkveitingu að upphæð 200.000 kr. til tónlistarhátíðarinnar Kveldúlfs á Hjalteyri.

2. Áfangastaðaáætlun - uppfærsla 2026 - H2604038
Óskað hefur verið eftir uppfærslu á verkefnalista Hörgársveitar í áfangastaðaáætlun Norðurlands. Nefndinni er falið að yfirfara stöðu verkefna og leggja mat á áherslur í frekari uppbyggingu.
Atvinnu- og menningarnefnd fór yfir verkefnalista Hörgársveitar í áfangastaðaáætlun Norðurlands og telur ekki þörf á verulegum breytingum að svo stöddu. Nefndin felur starfsmanni að auglýsa eftir tillögum að nýjum uppbyggingarverkefnum.

3. Hraun í Öxnadal - H2602056
Farið yfir stöðu mála á Hrauni í Öxnadal, þar á meðal uppbyggingu og nýtingu styrks sem fengist hefur til skiltagerðar.
Atvinnu- og menningarmálanefnd fór yfir stöðu mála á Hrauni í Öxnadal og fagnar styrk til skiltagerðar.

4. Sæludagur í Hörgársveit 2026 - H2602060
Umræður um viðburðinn
Nefndin leggur til að haldin verði brenna í Laugarlandskrúsunum og að það verði brekkusöngur. Einnig fóru fram umræður um að efla dagskránna á Þelamörkinni.

5. Fjölskylduhátíðin á Hjalteyri 2026 - H2602061
Umræður um viðburðinn

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18.19