Atvinnu- og menningarnefnd fundur nr. 35
Þriðjudaginn 3. mars 2025 kl. 16:30 kom atvinnu- og menningarnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu Hörgársveitar.
Fundarmenn voru, Eva Hilmarsdóttir formaður, Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir varaformaður, Vignir Sigurðsson, Jóhanna María Oddsdóttir, Jónas Þór Jónasson fulltrúar í nefndinni, Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri og Kolbrún Lind Malmquist starfsmaður nefndarinnar sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
1. Erindi frá Verksmiðjunni á Hjalteyri
Fyrir liggur drög að þriggja ára samstarfssamningi milli Verksmiðjunnar á Hjalteyri og Hörgársveitar fyrir árin 2026–2028.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagðan samstarfssamning þar sem árleg upphæð styrks er kr. 750.000.
2. Erindi frá Félagi eldri borgara í Hörgársveit
Félag eldri borgara í Hörgársveit óskar eftir styrk vegna menningarviðburðar á aðalfundi félagsins þriðjudaginn 14. apríl 2026, þar sem fyrirhugað er að fá listamanninn Svavar Knút með tónlistaratriði og fræðsluerindi.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt.
3. Hinsegin hátíð 2026
Umræður um hátíðina og fyrirkomulag hennar í ár.
Nefndin fagnar því að Hinsegin hátíð verði haldin á ný árið 2026 og lýsir yfir stuðningi við verkefnið. Nefndin felur starfsmanni nefndarinnar, Kolbrúnu Lind Malmquist, að koma að undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar fyrir hönd Hörgársveitar.
4. Sæludagur 2026
Nefndin ræddi undirbúning Sæludags 2026 sem haldinn verður laugardaginn 20. júní nk. Sæludagur er sumarhátíð í sveitarfélaginu þar sem boðið er upp á fjölbreytta viðburði víðs vegar um sveitina.
Nefndin hvetur sveitunga, félagasamtök, fyrirtæki og aðra áhugasama til að taka þátt í hátíðinni og standa fyrir opnum viðburðum þennan dag. Jafnframt er bent á að hægt er að óska eftir stuðningi frá sveitarfélaginu vegna skipulagningar og framkvæmdar viðburða í tengslum við Sæludaginn.
Nefndin felur starfsmanni nefndarinnar Kolbrúnu Lind Malmquist að auglýsa eftir þátttakendum og sjá um utanumhald hátíðarinnar.
5. Fjölskylduhátíðin á Hjalteyri
Umræða um hátíðina.
Nefndin leggur til að Fjölskylduhátíðin á Hjalteyri verði venju samkvæmt haldin um verslunarmannahelgina. Nánari tilhögun og undirbúningur verði unnin í samráði við hagaðila og starfsmann nefndarinnar Kolbrúnu Lind Malmquist.
6. Íþróttamiðstöðin á Þelamörk
Ýmis mál rædd varðandi viðhald og kaup á lyftu í sundlaugina fyrir hreyfihamlaða.
Fleira gerðist ekki, fundi slitið klukkan 18:05