Atvinnu- og menningarnefnd fundur nr. 34

18.11.2025 16:00

Mánudaginn 18. nóvember 2025 kl. 16:00 kom atvinnu- og menningarnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu Hörgársveitar.

Fundarmenn voru, Eva Hilmarsdóttir formaður, Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir varaformaður, Vignir Sigurðsson, Jóhanna María Oddsdóttir, Jónas Þór Jónasson fulltrúar í nefndinni, Snorri Finnlaugson sveitarstjóri og Kolbrún Lind Malmquist starfsmaður nefndarinnar sem ritaði fundargerð.

 

Þetta gerðist:

1. Erindi frá Kraftlyftingarskólanum
Umsókn um mánaðarlegan rekstrarstyrk að upphæð 200.000kr alls 2.400.000kr. fyrir árið 2026.
Nefndin hafnar ósk um rekstrarstyrk til Lyftingarskólans en er opið fyrir að koma að einstökum viðburði eða kynningarátaki fyrir börn og unglinga í sveitarfélaginu.

2. Erindi frá foreldrafélagi Þelamerkurskóla
Foreldrafélag Þelamerkurskóla sækir um styrk að upphæð allt að 400.000 kr. til að bjóða nemendum í ÞMS á menningartengdaviðburði skólaári 2025-26.
Nefndin samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að veittur verði styrkur kr. 400.000 til að fara með nemendur skólans á menningarviðburði.

3. Gjaldskrár 2026
Lögð fram tillaga að breytingum á gjaldskrám er varða málaflokka nefndarinnar.
Atvinnu- og menningarnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að á árinu 2026 verði stakt gjald fyrir fullorðinn í sund kr. 1.300,- og kr. 320,- fyrir börn. Aðrar hækkanir á gjaldskrá íþróttamiðstöðvar verði um 4% milli áranna 2025 og 2026.
Þá samþykkti atvinnu- og menningarnefnd að leggja til við sveitarstjórn að á árinu 2026 eigi íbúar sveitarfélagsins og fastráðnir starfsmenn sveitarfélagsins kost á lýðheilsustyrk í formi árskorts í sund í Jónasarlaug.
Atvinnu- og menningarnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að styrkur til niðurgreiðslu þátttökugjalda barna frá fimm ára aldursári til og með sautjánda aldursárs í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi verði kr. 54.000,- fyrir árið 2026.

4. Fjárhagsáætlun 2026
Kynntar voru tillögur að fjárhagsáætlun 2026 er varða þá málaflokka sem undir nefndina heyra.
Atvinnu- og menningarnefnd samþykkti fjárhagsáætlun rekstrar fyrir sitt leyti.

5. Atvinnustaða sveitarfélagsins
Atvinnustaða sveitarfélagsins síðan í janúar 2024 kynnt. Meðal atvinnuleysi í sveitarfélaginu er 11,8 manns á mánuði. Alls í dag eru 1,25% prósent af íbúum Hörgársveitar atvinnulausir. Atvinnuleysi á öllu Íslandi í dag er 3,9%.

6. Starfsemi Drangans, félagsmiðstöðin í Hörgársveit
Opnanir eru einu sinni í viku fyrir börn á unglingastigi á fimmtudögum klukkan 20-22. Miðstigsopnanir eru tvisvar í mánuði fyrsta og þriðja þriðjudag klukkan 16:15-18:00. Farið var að stað með prufuverkefni að hafa opnanir einu sinni í mánuði fyrir ungmenni á aldrinum 16-18 ára og hefur lukkast vel og aðsóknin góð, ungmennin óska eftir að halda áfram með opnun fyrir þau á nýju ári einu sinni í mánuði.
Nefndin leggur til að haldið verði áfram með opnanir fyrir 16-18 ára til prufu fram á vor.

 

Fleira gerðist ekki, fundi slitið klukkan 17:45