Atvinnu- og menningarnefnd fundur nr. 33
Mánudaginn 26. maí 2025 kl. 17:00 kom atvinnu- og menningarnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu Hörgársveitar.
Fundarmenn voru, Eva Hilmarsdóttir formaður, Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir varaformaður, Vignir Sigurðsson, Jóhanna María Oddsdóttir, Jónas Þór Jónasson fulltrúar í nefndinni og Kolbrún Lind Malmquist starfsmaður nefndarinnar sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
1. Erindi frá Kveldúlfi
Umsókn um viðburðarleyfi á Hjalteyri laugardaginn 12. júlí 2025.
Nefndin samþykkir fyrir sitt leiti að viðburðurinn verði haldinn og lýsir yfir ánægju með framtakið.
2. Sæludagur / Hinsegin hátíð 2025
Umræða um viðburðinn.
3. Hjalteyrarhátíð
Umræða um viðburðinn.
4. Félagsmiðstöðin
Nýtt nafn og umræður um starfsfyrirkomulag næsta skólaár.
Nefndinni lýst vel á nýtt nafn félagsmiðstöðvarinnar sem nú heitir Dranginn. Einnig leggur nefndin til við sveitarstjórn að næsta haust verði farið af stað með starf fyrir ungmenni 16+.
Fleira gerðist ekki, fundi slitið klukkan 18:00