Atvinnu- og menningarnefnd fundur nr. 32

19.03.2025 12:00

Miðvikudaginn 19. mars 2025 kl. 12:00 kom atvinnu- og menningarnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu Hörgársveitar.
Fundarmenn voru, Eva Hilmarsdóttir formaður, Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir varaformaður, Vignir Sigurðsson, Jóhanna María Oddsdóttir, Jónas Þór Jónasson fulltrúar í nefndinni og Kolbrún Lind Malmquist starfsmaður nefndarinnar sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Erindi frá UMSE
UMSE óskar eftir að gera samstarfssamning við Hörgársveit og Ungmennafélagið Smárann fyrir árin 2025-2028.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samningurinn verði samþykktur.

2. Hinsegin hátíð 2025
Umræða um hátíðina og hvaða viðburður eigi að fara fram í Hörgársveit.
Nefndin tekur jákvætt í hugmyndina.

3. Erindi frá foreldrafélagi Álfasteins
Foreldrafélag Álfasteins óskar eftir styrk kr. 150.000 til að halda veglega afmælisveislu í tilefni 30 ára afmæli leikskólans á vorhátíðinni, sveitungum verður boðið að koma á opið hús.
Nefndin fagnar framlagi foreldrafélagsins og samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að veittur verði styrkur að upphæð kr. 150.000.

4. Erindi frá KFA
Félagið kynnti starfsemi sína og óskaði eftir stuðningi sveitarfélagsins vegna nauðsynlegra endurbóta á aðstöðunni.
Nefndin felur verkefnastjóra að kynna sér málið og ræða við hlutaðeigandi.

5. Sæludagur og Fjölskylduhátíðin á Hjalteyri
Umræður um viðburðina.
Nefndin leggur til að Sæludagurinn verði haldinn laugardaginn 21. júní 2025. Fjölskylduhátíðin á Hjalteyri verður venju samkvæmt haldin um Verzlunarmannahelgina.

 

Fleira gerðist ekki, fundi slitið klukkan 12:40