Atvinnu- og menningarnefnd fundur nr. 31

20.11.2024 16:30

Miðvikudaginn 20. nóvember 2024 kl. 16:30 kom atvinnu- og menningarnefnd Hörgársveitar saman til fundar í efri sal íþróttamiðstöðvarinnar á Þelamörk.
Fundarmenn voru, Eva Hilmarsdóttir formaður, Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir varaformaður, Vignir Sigurðsson, Jóhanna María Oddsdóttir og Jónas Þór Jónasson fulltrúar í nefndinni, Daniel Ben Önnuson starfsmaður nefndarinnar og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Hraun í Öxnadal, tillögur um uppbyggingu
Hanna Rósa Sveinsdóttir stjórnarformaður Hrauns í Öxnadal ehf og Gunnar Már Gunnarsson verkefnastjóri, fulltrúar verkefnastjórnar um uppbyggingu Hrauns í Öxnadal, mættu á fundinn og kynntu tillögurnar fyrir nefndinni og sveitarstjórn.
Atvinnu- og menningarnefnd lýsir ánægju sinni með þær tillögur sem kynntar voru.

2. Gjaldskrár 2025
Lögð fram tillaga að breytingum á gjaldskrám er varða málaflokka nefndarinnar.
Atvinnu- og menningarnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að á árinu 2025 verði stakt gjald fyrir fullorðinn í sund kr. 1.250,- og kr. 310,- fyrir börn. Aðrar hækkanir á gjaldskrá íþróttamiðstöðvar verði um 3,9% milli áranna 2024 og 2025.
Þá samþykkti atvinnu- og menningarnefnd að leggja til við sveitarstjórn að á árinu 2025 eigi íbúar sveitarfélagsins og fastráðnir starfsmenn sveitarfélagsins kost á lýðheilsustyrk í formi árskorts í sund í Jónasarlaug án greiðslu.
Atvinnu- og menningarnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að styrkur til niðurgreiðslu þátttökugjalda barna frá fimm ára aldursári til og með sautjánda aldursárs í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi verði kr. 52.000,- fyrir árið 2025.

3. Fjárhagsáætlun 2025
Kynntar voru tillögur að fjárhagsáætlun 2025 er varða þá málaflokka sem undir nefndina heyra.
Atvinnu- og menningarnefnd samþykkti fjárhagsáætlun rekstrar fyrir sitt leyti.

 

Fleira gerðist ekki, fundi slitið klukkan 18:20