Atvinnu- og menningarnefnd fundur nr. 30

29.05.2024 12:30

Miðvikudaginn 29. maí 2024 kl. 12:30 kom atvinnu- og menningarnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu Hörgársveitar.

Fundarmenn voru, Eva Hilmarsdóttir formaður, Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir varaformaður, Vignir Sigurðsson, Jóhanna María Oddsdóttir og Jónas Þór Jónasson fulltrúar í nefndinni, Kolbrún Lind Malmquist og Daniel Ben Önnuson starfsmenn nefndarinnar og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Erindi frá Verksmiðjunni á Hjalteyri

Lagt fram bréf frá Verksmiðjunni á Hjalteyri þar sem farið er yfir starfsemina. Nefndin fagnar gróskumiklu menningarstarfi Verksmiðjunnar og ítrekar stuðning sinn við félagið sem samþykktur var á síðasta ári.

  1. Framkvæmdir í íþróttamiðstöð

Lögð fram og farið yfir verkáætlun 2024 fyrir íþróttamiðstöð og sundlaug.

  1. Vetraropnun sundlaugarinnar

Umræða um opnunartíma komandi vetrar 2024-25

  1. Sumarhátíðir í Hörgársveit 2024

Kynning á hátíðum og fyrirkomulagi í ár. Sæludagurinn verður 22. júní og Fjölskylduhátíðin á Hjalteyri verður 3. ágúst.

Fleira gerðist ekki, fundi slitið klukkan 13:35