Atvinnu- og menningarnefnd fundur nr. 29

29.01.2024 17:00

Mánudaginn 29. janúar 2024 kl. 17:00 kom atvinnu- og menningarnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu Hörgársveitar.

Fundarmenn voru, Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir varaformaður, Vignir Sigurðsson, Jóhanna María Oddsdóttir, Jónas Þór Jónasson og María Albína Tryggvadóttir (vm) fulltrúar í nefndinni, Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri og Kolbrún Lind Malmquist starfsmaður nefndarinnar sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Sumarhátíðir í Hörgársveit 2024

Umræða um fyrirkomulag.

Nefndin samþykkti að halda sama fyrirkomulagi og síðasta ár. Sæludagur verður haldinn 22. júní og Fjölskylduhátíð á Hjalteyri 3. ágúst.

2. Erindi frá foreldrafélagi Þelamerkurskóla

Foreldrafélag Þelamerkurskóla óskar eftir styrk kr. 300.000 til að fara með nemendur á leiksýningar.
Nefndin samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að veittur verði styrkur kr. 300.000 til að fara með nemendur skólans á menningarviðburði.

3. Handbók félagsmiðstöðvarinnar í Hörgársveit

Nefndin fór yfir handbók félagsmiðstöðvarinnar og samþykkti hana með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum.

4. Vinnuskólinn

Umræða um breyttan vinnutíma í framhaldi af erindi ungmennaráðs.

Nefndin leggur til við sveitarstjórn að auka vinnutíma nemenda í 10. bekk um 40 klst. Vinnutími helst óbreyttur 4 klst. á dag en lengd starfstímabils verði 8 vikur í stað 6.

5. Önnur mál

Nefndin ræddi um uppbyggingu að Hrauni í Öxnadal og öðrum menningartengdum stöðum í sveitarfélaginu.

Fleira gerðist ekki, fundi slitið klukkan 18:30