Sveitarstjórn, fundur nr. 60

20.08.2015 15:00

Sveitarstjórn Hörgársveitar 

60. fundur 

Fundargerð 

 

Fimmtudaginn 20. ágúst 2015 kl. 18:00 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar í skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

 

Fundarmenn:  Axel Grettisson, Ásrún Árnadóttir, Helgi Bjarni Steinsson, Jóhanna María Oddsdóttir og Jón Þór Benediktsson,  

 

Fundarritari: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.

 

Þetta gerðist:

 

1.        Fundargerð skipulags og umhverfisnefndar 13. ágúst 2015

Fundargerðin er í 12 liðum. Þar af eru níu liðir til afgreiðslu sveitarstjórnar.

a) Í 3.lið, Lækjarvellir, ósk varðandi breytingu á deiliskipulagi og lóðarúthlutun.

Sveitarstjórn samþykkti að deiliskipulag að Lækjarvöllum verði óbreytt að því leiti að þar verði áfram gert ráð fyrir atvinnuhúsnæði eingöngu en ekki íbúðarhúsnæði. 

b) Í 4.lið, breyting á núgildandi aðalskipulagi vegna færslu á sveitarfélagamörkum og færslu á Lónsá.

Fyrir fundinum lá tillaga að breytingu á sveitarfélagamörkum með tilfærslu Lónslækjar til suðurs á móts við sláturhús B. Jensen í Hörgársveit, þannig að hægt verði að koma fyrir viðbyggingu við þá starfsemi sem þar er.

Sveitarstjórn samþykkti að láta gera aðalskipulagsbreytingu á sveitarfélagamörkunum vegna færslu Lónslækjar á fundi sínum 21. maí 2015. Tillagan að aðalskipulagsbreytingu dagsett 15. júlí 2015 er unnin af Landmótun ehf. og Árna Ólafssyni frá Gylfa Guðjónssyni og félögum ehf. Breyting þessi felur ekki í sér stefnu um leyfisveitingar til framkvæmda, sem tilgreindar eru í lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og er hún því ekki háð lögum nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Breytingin er óveruleg og hefur hvorki áhrif á ósnortna náttúru, jarðmyndanir og vistkerfi, sem njóta sérstakrar verndar, verndarsvæði né skráðar fornminjar. Breytingin hefur ekki í för með sér neikvæð áhrif á nágranna eða landnotkun og nýtingu aðliggjandi svæða.

Sveitarstjórn samþykkti tillöguna í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er sveitarstjóra falið að annast gildistöku hennar.

c) Í 6. lið, umsókn um framlengingu stöðuleyfa fyrir vatnstanka að Skútum - umsögn

Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemd við að stöðuleyfi verði framlengt til allt að tveggja ára, en mælist til þess að leyfishöfum verði gert skilt að mála tankana strax í jarðlitum er falli vel að umhverfinu og hugað verði að því að tankarnir verði færðir í náinni framtíð á stað þar sem þeir valda minni sjónmengun.

d) Í 7. lið, umsókn um að stofna lóð undir bragga í landi Áss.

Sveitarstjórn samþykkti að veita umbeðið leyfi.

e) Í 8. lið, umsókn um að stofna lóð undir íbúðar- og móttökuhús landi Moldhauga

Sveitarstjórn samþykkti að veita heimild til að stofna lóð fyrir íbúðar- og móttökuhús úr jörðinni Moldhaugar skv. framlögðum gögnum.

f) Í 9.lið,umsókn um að stofna lóð undir heilsársbústað í landi Neðri-Rauðalækjar

Sveitarstjórn samþykkti að veita heimild til að stofna lóð fyrir heilsárshús úr jörðinni Neðri-Rauðalækur skv. framlögðum gögnum.

g) Í 10.lið,umsókn um að stofna lóð undir frístunda-/ferðaþjónustuhús í landi Fornhaga II

Sveitarstjórn samþykkti að veita heimild til að stofna lóð fyrir frístunda-/ferðaþjónustuhús úr jörðinni Fornhagi II skv. framlögðum gögnum. 

h) Í 11.lið, umsókn um stöðuleyfi fyrir gám í landi Stekkjaráss við Dagverðareyri.

Sveitarstjórn samþykkti að veita stöðuleyfi til eins árs.

Jóhanna María Oddsdóttir vék af fundi undir þessum lið.

i)Í 12.lið, auglýsing um starfsleyfistillögu fyrir efnisnám og geymlsusvæði Skútum/Mold- haugum.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands Eystra hefur auglýst starfsleyfistillöguna og er   umsagnarfrestur til 9.september 2015.

Sveitarstjórn samþykkti að senda inn athugasemdir fyrir lok auglýsingartíma og felur oddvita, formanni skipulags- og umhverfisnefndar og sveitarstjóra að yfirfara tillöguna og  koma athugasemdum á framfæri skriflega við Heilbrigðiseftirlit Norðurlands Eystra.

2.        Aðalskipulag Hörgársveitar 2012-2024

Fyrir fundinum lá tillaga að aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 ásamt greinargerð, forsendum og umhverfisskýrslu, dagsett 29. maí 2015 með lagfæringum með tilliti til athugasemda Skipulagsstofnunar sem bárust með bréfi 2. júlí 2015. Með því bréfi var Skipulagsstofnun búin að heimila auglýsingu ef tekið yrði tillit til þeirra ábendinga og athugasemda sem komu fram í því bréfi. Lá því fyrir lagfærð tillaga að aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024.

Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkti aðalskipulagstillöguna og umhverfisskýrsluna og felur sveitarstjóra að auglýsa tillöguna skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

3.        Fundargerðir atvinnu- og menningarnefndar frá 26. júní og 13. júlí 2015

Fyrir fundinum lágu fundargerðir frá 3. og 4. fundi nefndarinnar.

Fundargerðirnar gefa ekki tilefni til ályktunar af hálfu sveitarstjórnarinnar.

4.        Fundargerðir fjallskilanefndar frá 6. júlí og 17. ágúst 2015

Fyrir fundinum lágu fundargerðir frá 14. og 15. fundi nefndarinnar. Þar eru tveir liðir til afgreiðslu sveitarstjórnar.

a) Í 2.lið, frá 15. fundi, álagning gangnadagsverka.

Sveitarstjórn samþykkir að við álagningu fjallskila 2015 verði gerð sú breyting, frá því sem verið hefur, að ekki verði lögð á gangnadagsverk í eftirleitum en ef vitað er um fé að loknum öðrum göngum skuli gangastjórar á viðkomandi svæði samt sem áður sjá til þess að það verði sótt.

b) Í 5.lið, frá 15. fundi, búfjártölur frá Matvælastofnun.

Fjallskilanefnd bendir á að í þeim búfjártölum sem bárust Hörgársveit vantaði tölur um fjölda sauðfjár á nokkrum bæjum í sveitarfélaginu. 

Sveitarstjórn gerir athugasemd við þessa skýrslugjöf frá stofnuninni og felur sveitarstjóra að koma þeim á framfæri.

5.        Fundargerð byggingarnefndar Eyjafjarðarsvæðis frá 7. júlí 2015

Fundargerðin er í tólf liðum.  Tveir liðir varða Hörgársveit.  Í 11. lið er umsókn um leyfi fyrir að byggja sumarhús á jörðinni Þverá og í 12. lið er umsókn um leyfi fyrir að byggja gestahús á Ytri-Bakka, lóð D.

Fundargerðin gefur ekki tilefni til ályktunar af hálfu sveitarstjórnarinnar.

6.        Berghóll II, sala

Fyrir fundinum liggur samningur vegna sölu á húseigninni til Skútabergs ehf . Húsið mun verða flutt af núverandi lóð og staðsett á lóð í landi Moldhauga.

Sveitarstjórn samþykkir samninginn og felur sveitarstjóra að undirrita hann fyrir hönd sveitarfélagsins.

7.        Fjárhagsáætlun 2016, yfirlit yfir stöðu reksturs 30.6.2015

Fyrir fundinum lá yfirlit yfir stöðu reksturs málaflokka 30.6.2015 þar sem fram kemur að heildarniðurstaða reksturs er í samræmi við fjárhagsáætlun 2015.  Staða reksturs 30.6.2015 verður hluti af forsendum þeirrar fjárhagsáætlunarvinnu vegna árins 2016 sem  hafin er. 

8.        Beiðni um heimaréttir að Auðnum 1.

Fyrir fundinum lá beiðni frá íbúendum að Auðnum 1 um að fá að reka inn og rétta að Auðnum 1 því fé sem kemur af gangasvæðinu Vatnsdalur í Öxnadal.

Sveitarstjórn samþykkti beiðnina enda komi umsækjandi öðru fé en sínu eigin í skilarétt.

9.        Vatnsveita Hjalteyrar – samkomulag.

Fyrir fundinum lágu drög að samkomulagi við landeigendur að Sjávarbakka um yfirtöku Vatnsveitu Hjalteyrar á vatnslögn í landi þeirra.

Sveitarstjórn samþykkti samkomulagið.

10.        Verbúðir Hjalteyri – erindi um breytingar á skipulagi lóða.

Fyrir fundinum lágu erindi frá Kristínu Agnarsdóttur og Jóni Jóhannsyni dags. 17. ágúst 2015 og Jakobínu Elvu Káradóttur dags. 18. ágúst 2015 þar sem þau óska eftir að breytingar verði gerðar á lóðum undir verbúðir á Hjalteyri.

Sveitarstjórn samþykkti að deiliskipulag Hjalteyri verði óbreytt að því leiti að þar verði áfram gert ráð fyrir verbúðarlóðum með þeim hætti sem er í gildandi skipulagi.

11.        Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra, endunýjun á rekstrarleyfi.

Fyrir fundinum lá erindi þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar um endurnýjun á rekstrarleyfi fyrir heimagistingu í Litla-Dunhaga II.

Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemd fyrir sitt leiti við að rekstrarleyfið verði veitt.

12.        Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra, nýtt rekstrarleyfi.

Meðfylgjandi er erindi þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi fyrir gistiheimili Engimýri.

Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemd fyrir sitt leiti við að rekstrarleyfið verði veitt.

13.        Trúnaðarmál.

 

Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 20.20