Skipulags- og umhverfisnefnd, fundur nr. 43

11.08.2016 14:00

Skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar

43. fundur

Fundargerð

Fimmtudaginn 11. ágúst 2016 kl. 14:00 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

 

Fundarmenn: Jón Þór Benediktsson formaður, Jóhanna María Oddsdóttir og Sigríður Guðmundsdóttir í skipulags- og umhverfisnefnd og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.

Fundargerð ritaði Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.

Þetta gerðist:

1.    Erindi Umhverfisstofnunar um tillögu að auglýsingu um friðlýsingu í Hólum

Lagt fram erindi Umhverfisstofnunar dags. 11. Júlí 2016 um tillögu að auglýsingu um friðlýsingu landslagsverndarsvæðis í Hólum, en stofnunin óskar eftir afstöðu Hörgársveitar til tillögunnar.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við tillögu að auglýsingu eins og hún liggur nú fyrir.

2.            Erindi frá Skipulagsstofnun vegna landsskipulagsstefnu 2015-2026

Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 16. júní 2016 þar sem landsskipulagsstefnan er kynnt og óskað er eftir tilnefningu tengiliðs á samráðsvettvang um framfylgd stefnunnar.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að sveitarstjóri verði tengiliður Hörgársveitar.

3.    Umsókn frá eigendum Þríhyrnings 1 um stofnun landsspildu úr jörðinni

Lagt fram erindi ásamt uppdrætti frá eigendum Þríhyrnings 1 þar sem óskað er eftir að stofnuð verði landsspilda úr landi Þríhyrnings 1 (landnúmer 152419).  Landspildan er 61,5 ha að stærð og fái nafnið Stóri-Dunhagi 3. Óskað er eftir umsögn um landskiptin, sbr. 13. gr. jarðalaga nr. 81/2004.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að hún samþykkifyrir sitt leyti þau landskipti í Þríhyrningi 1, sem lýst er í framlögðum gögnum.

Sigríður Guðmundsdóttir vék af fundi undir þessum lið.

4.    Erindi frá Trygg ehf vegna byggingareits fyrir frístundahús að Efri-Rauðalæk

Lagt fram erindi frá Trygg ehf. ásamt uppdrætti.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki fyrir sitt leyti að heimila byggingu frístundahúss í landi Efri-Rauðalækjar samkvæmt framlögðum gögnum.

 

Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl 14:40