Skipulags- og umhverfisnefnd, fundur nr. 2

10.11.2010 20:00


Miðvikudaginn 10. nóvember 2010 kl. 20:00 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar saman til fundar í skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

 

Fundarmenn: Hanna Rósa Sveinsdóttir, Anna Dóra Gunnarsdóttir, Birna Jóhannes-dóttir, Jón Þór Benediktsson og Róbert Fanndal í skipulags- og umhverfisnefnd og Guðmundur Sigvaldason, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð. Árni K. Bjarnason, fv. sveitarstjóri, sat fundinn undir 2. lið fundargerðarinnar.

 

Þetta gerðist:

 

1. Fjárhagsrammi nefndarinnar fyrir árið 2011

Lögð fram drög að fjárhagsramma skipulags- og umhverfisnefndar fyrir árið 2011. Þá voru kynnt frumdrög að fjárhagsáætlun ársins 2011 fyrir þá málaflokka sem nefndin hefur með að gera, sem eru hreinlætismál, skipulags- og byggingamál og umhverfismál.

Umræður urðu um drögin.

 

2. Rotþróamál, reglur og gjaldskrá

Lagðar fram tillögur að samræmdum reglum um rotþróamál í sveitarfélaginu, sbr. 13. lið í fundargerðnefndarinnar frá 22. september 2010. Meginefni tillagnanna er sem hér segir:

·  Sameiginleg samþykkt verði sett um fráveitur fyrir sveitarfélagið.

·  Fráveitugjald/holræsagjald verði með sambærilegum hætti á Lónsbakka og Hjalteyri (að hluta) og verði miðað við hundraðshluta af fasteignamati.

·  Sveitarfélagið eigi ekki fjárhagslega aðkomu að rotþróarframkvæmdum í dreifbýli.

·  Tæming rotþróa verði skipulögð af sveitarfélaginu og að jafnaði gengið út frá því að rotþrær séu tæmdar á þriggja ára fresti

·  Rotþróargjald verði innheimt með öðrum fasteignagjöldum í samræmi við samþykkt.

·  Rotþróargjald verði innheimt m.t.t. stærðar rotþróa.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að þær tillögur sem lagðar voru fram á fundinum verði lagðar til grundvallar við framkvæmd fráveitumála í sveitarfélaginu.

 

3. Aðalskipulag Akureyrar, breyting

Lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar, sem fellst í því að afmarkað er 1,8 ha svæði fyrir þjónustustofnanir við Vestursíðu. Einnig er á sama svæði skilgreint 2 ha svæði með blandaðri landnotkun fyrir íbúðabyggð og þjónustustofnanir.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að af hálfu Hörgársveitar verði ekki verði gerð athugasemd við tillöguna.

 

4. Svæðisskipulag fyrir Eyjafjörð

Gerð var grein fyrir þeirri vinnu sem er í gangi við svæðisskipulag fyrir Eyjafjörð.

 

Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 22:00.