Fræðslunefnd, fundur nr. 13

17.02.2014 16:30

Mánudaginn 17. febrúar 2014 kl. 16:30 kom fræðslunefnd Hörgársveitar saman til fundar í Þelamerkurskóla, matsal.

 

Fundarmenn voru: Axel Grettisson, Garðar Lárusson, Líney S. Diðriksdóttir, Sunna H. Jóhannesdóttir og Stefanía Steinsdóttir, nefndarmenn, og auk þess Hugrún Ósk Hermannsdóttir, leikskólastjóri, Ingileif Ástvaldsdóttir, skólastjóri, Andrea R. Keel, fulltrúi foreldra leikskólabarna, og Guðmundur Sigvaldason, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.

 

Þetta gerðist:

 

1. Skipulag skólamála, yfirlit yfir helstu valkosti

Lagt fram yfirlit yfir kosti og galla helstu valkosta og fjárhagslega þætti sem varða hugsanlegt breytt skipulag skólamála í sveitarfélaginu. Yfirlitið hefur verið kynnt starfsfólki Þelamerkurskóla annars vegar og Álfasteins hins vegar. Það er samið af vinnuhópi á vegum sveitarstjórnar, sbr. samþykkt sveitarstjórnar 16. október 2013.

Fræðslunefnd telur mikilvægt að hagsmunir barnanna séu hafðir í fyrirrúmi í hugsanlegu breyttu skipulagi skólamála í sveitarfélaginu.

 

2. Þelamerkurskóli, framkvæmdir

Gerð grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum í Þelamerkurskóla, sem felast í stækkun upphaflegs anddyris, uppsetningu lyftu og endurbótum á A-álmu skólans.

 

3. Þelamerkurskóli, verðskrá fyrir afnot af húsnæði

Fram kom að gildandi verðskrá fyrir tilfallandi afnot af húsnæði Þelamerkurskóla er frá því í mars-mánuði 2010. Rætt um fyrirkomulag á gjaldtöku fyrir afnotin.

Fræðslunefnd samþykkti að gerð verði drög að breyttri verðskrá og reglum um fyrirkomulag á gjaldtökunni fyrir húsnæðisafnotin.

 

 

Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 18:00.