Fjallskilanefnd, fundur nr. 24

19.08.2019 20:00

Fjallskilanefnd Hörgársveitar

24. fundur

Fundargerð

Mánudaginn 19. ágúst 2019 kl. 20:00 kom fjallskilanefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

Fundarmenn: Þór Jónsteinsson formaður, Jósavin Gunnarsson varaformaður, Jónas Þór Jónasson, Davíð Jónsson, og Arnar Ingi Tryggvason nefndarmenn og Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Álagning gangnadagsverka

Lögð fram drög að álagningu fjallskila haustið 2019. Nefndin fór yfir drögin og gerði á þeim breytingar. Heildarfjöldi gangnadagsverka er 477. Samkvæmt síðustu forðagæsluskýrslu er alls um að ræða 7.636 kindur, sem er fækkun um 277 frá fyrra ári. Af þeim voru 187 kindur innan girðingar í sumar, þannig að til álagningar vegna fjallskilanna koma 7.449 kindur.  Meðaltalsfjöldi kinda í dagsverki er því 15,62.

Ákveðið var að gera þá breytingu frá því sem áður hefur verið að sem næst jafnmargar kindur verði í dagsverki, annars vegar á því fé sem rekið er í Reistarárrétt og hinsvegar á því fé sem smalað er í Þorvaldsdal/þverdölum og Auðbrekkufjalli.

Fjallskilanefnd samþykkti framlögð drög að álagningu fjallskila haustið 2019, með þeim breytingum sem gerðar voru á þeim á fundinum.

2. Tímasetning gangna haustið 2019

Rætt um tímasetningu gangna.  Tímasetning gagna var samþykkt á fundi nefndarinnar þann 20. maí 2019.  Frávik frá þeim dagsetningum koma fram á gangnaseðlum.

3. Undanþágur frá fjallskilum

Fram kom að borist hefðu beiðnir frá jörðunum Árhvammi, Bitru, Hlöðum, Efsta-Samtúni og Steinkoti um að vera undanþegnar fjallskilum í haust, enda hafi fé þaðan verið í fjárheldum girðingum sumarlangt. Samtals er um að ræða 187 kindur.

Fjallskilanefnd samþykkti framkomnar beiðnir um undanþágur frá fjallskilum haustið 2019. 

4. Viðhald fjárrétta

Rætt um stöðu mála varðandi ásigkomulag og viðhald fjárrétta.

5. Lausaganga búfjár

Umræður um lausagöngu búfjár í sveitarfélaginu og ágang búfjár í heimalandi annarra.

Fjallskilanefnd samþykkti að beina því til sveitarstjórnar að kannað verði með hvaða hætti er hægt að koma á betri reglu um lausagöngu búfjár.

 Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 23:05