Fjallskilanefnd, fundur nr. 19

10.07.2017 20:30

Fjallskilanefnd Hörgársveitar

 

19. fundur

 

Fundargerð

 

Mánudaginn 10. júlí 2017 kl. 20:30 kom fjallskilanefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

 

Fundarmenn: Aðalsteinn H. Hreinsson, Jónas Þór Jónasson og Sigríður Kristín Sverrisdóttir nefndarmenn, svo og Jósavin Gunnarsson og Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.

 

Þetta gerðist:

 

 

1.        Tímasetning gangna haustið 2017

Fjallskilanefnd samþykkti tímasetningu gangna haustið 2017.

Fjallskilanefnd samþykkti að 1. göngur haustið 2017 verði víðast hvar frá miðvikudeginum 6. september til sunnudagsins 10. september og að aðrar göngur verði víðast hvar viku síðar.

 

2.        Álagning gangnadagsverka

Rætt um fyrirkomulag á gerð draga að fjallskilaboðum.

Fjallskilanefnd samþykkti að gerð draga að fjallskilaboðum fari fram á skrifstofu sveitarfélagsins og Jósavin Gunnarsson sjái um Arnarnesdeild.

 

3.        Undanþágur frá fjallskilum

Fjallskilanefnd samþykkti að þeir sem hafa allt sitt fé í sauðheldum girðingum allt sumarið, geti sótt um til fjallskilanefndar að vera undanþegnir fjallskilum.

 

4.        Viðhald fjárrétta

Rætt um stöðu mála varðandi ásigkomulag og viðhald fjárrétta.

 

 

 

Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 22:20