Fjallskilanefnd, fundur nr. 13

19.08.2014 20:00

Þriðjudaginn 19. ágúst 2014 kl. 20:00 kom fjallskilanefnd Hörgársveitar saman til fundar í skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

 

Fundarmenn: Aðalsteinn H. Hreinsson, Jónas Þór Jónasson og Sigríður Kristín Sverrisdóttir nefndarmenn, svo og Jósavin Gunnarsson og Guðmundur Sigvaldason, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.

 

Þetta gerðist:

 

1. Fjallskilastjórn í Arnarnesdeild

Fram kom að Davíð Jónsson taki ekki að sér fjallskilastjórn í Arnarnesdeild, sbr. samþykkt nefndarinnar 26. júní 2014.

Fjallskilanefnd samþykkti að Jósavin Gunnarsson verði fjallskilastjóri í Arnarnesdeild.

 

2. Undanþágur frá fjallskilum

Fram kom að borist hefðu beiðnir frá jörðunum Árhvammi og Bitru um að vera undanþegnar fjallskilum í haust, enda hafi fé þaðan verið í fjárheldum girðingum sumarlangt, sbr. samþykkt nefndarinnar 26. júní 2014. Samtals er um að ræða 65 kindur.

Fjallskilanefnd samþykkti framkomnar beiðnir um undanþágur frá fjallskilum haustið 2014.

 

3. Álagning gangnadagsverka

Lögð fram drög að álagningu fjallskila haustið 2014. Heildarfjöldi gangnadagsverka er 482. Samkvæmt síðustu forðagæsluskýrslu er alls um að ræða 7.118 kindur, sem er fækkun um 17 frá fyrra ári. Af þeim voru 65 kindur innan girðingar í sumar, þannig að til álagningar vegna fjallskilanna koma 7.053 kindur.  Skv. drögunum eru að jafnaði 25,0 kindur í dagsverki í Glæsibæjardeild, í Arnarnesdeild 16,8 kindur, í Skriðudeild 15,3 kindur og í Öxnadalsdeild 13,8 kindur.

Fjallskilanefnd samþykkti framlögð drög að álagningu fjallskila haustið 2014, með þeim breytingum sem gerðar voru á þeim á fundinum.

 

4. Flutningur á fé sem kemur fram utansveitar

Rætt um flutning á því fé úr sveitarfélaginu sem kemur fram í nágrannasveitarfélögum.

Fjallskilanefnd samþykkti að eftir haustið 2014 sjái fjáreigendur um að sækja sitt fé, sem kemur fram í öðrum sveitarfélögum.

 

5. Viðhald fjárrétta

Rætt um viðhald fjárrétta.

Ákveðið að fjallskilanefndarmenn hafi eftirlit með viðhald fjárrétta hver í sinni fjallskiladeild.

 

Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 24:40.