Sveitarstjórn Hörgárbyggðar, fundur nr. 91

21.06.2006 20:00

Mánudaginn 21. júní 2006 kl. 20:00 kom sveitarstjórn Hörgárbyggðar saman til síns 2. fundar  í Þelamerkurskóla.

Mætt voru: Árni Arnsteinsson, Birna Jóhannesdóttir, Guðný Fjóla Árnmarsdóttir, Helgi Bjarni Steinsson, Jóhanna María Oddsdóttir.

Helgi Steinsson setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.

Fundarritari: Birna Jóhannesdóttir.

 

Þetta gerðist:

 

1. Nefndaskipan – staðfesting

Eftirtaldir voru tilnefndir í nefndir Hörgárbyggðar 2006-2010:

Skólanefnd:                                          Til vara: 

Hanna Rósa Sveinsdóttir                        Elisabeth Zitterbart

Jóhanna María Oddsdóttir                       Ingibjörg Smáradóttir

 

Framkvæmdanefnd Þelamerkurskóla:

Oddviti á móti oddvita Arnarneshrepps

 

Héraðsnefnd:                                        Til vara:

Helgi Steinsson                                      Árni Arsteinsson 

 

Skoðunarmenn:                                    Til vara:  

Eva María Ólafsdóttir                              Hanna Rósa Sveinsdóttir

Oddur Gunnarsson                                 Ásbjörn Valgeirsson

 

Leikskólanefnd:                                     Til vara:

Guðný Fjóla Árnmarsdóttir formaður        Ásgrímur Bragi Konráðsson

Bernharð Arnarsson                               Guðrún Harðardóttir

Líney Diðriksdóttir                                  Birna Jóhannesdóttir                           

Bygginganefnd:                                      Til vara:

Klængur Stefánsson                                Haukur Steindórsson

 

Skipulags- og umhverfisnefnd:                 Til vara:

Birna Jóhannesdóttir,                               Jóhanna María Oddsdóttir

Oddur Gunnarsson formaður                    Guðmundur Víkingsson

Aðalheiður Eiríksdóttir                              Klængur Stefánsson

 

Fjallskilanefnd:

Guðmundur Skúlason formaður

Stefán Karlsson

Aðalsteinn H Hreinsson

 

Aðalfundur Eyþings:                                 Til vara:

Oddur Gunnarsson                                   Jóhanna María Oddsdóttir

Birna Jóhannesdóttir                                Guðjón Ármansson

 

Kjörstjórn:                                                Til vara:

Guðmundur Víkingsson formaður               Sturla Eiðsson

Jóna Kristín Antonsdóttir                            Herborg Sigfúsdóttir

Haukur Steindórsson                                 Sverrir Haraldsson

 

Félagsmála- og jafnréttisnefnd:                   Til vara:

Guðjón Rúnar Ármannsson                        Jóhanna María Oddsdóttir

Jóna Kristín Antonsdóttir                            Sigríður Svavarsdóttir 

Unnar Eiríksson formaður                          Árni Arnsteinsson

 

Húsnefnd félagsheimila:

Árni Arnsteinsson formaður

Jóhanna María Oddsdóttir

Guðný Fjóla Árnmarsdóttir

 

2.  Sveitarstjóramál

Rætt var við tvo einstaklinga um starf sveitarstjóra og var oddvita falið að vinna áfram að málinu í anda umræðnanna á fundinum.

 

3.  Fundargerð byggingarnefndar frá 6. júní 2006

Fundargerðin afgreidd án athugasemda.

 

4. Tónlistarskóli

Lögð var fram til kynningar ársskýrsla fyrir skólaárið 2005-2006.

Fundargerð frá 29. maí 2006 lögð fram ásamt áætlaðri skipting launakostnaðar fyrir haustönn 2006. Áætlaður kostnaður fyrir Hörgárbyggð er kr. 484.071 pr. mánuð frá ágúst til desember fyrir fulla kennslu 17 nemenda.

Sveitarstjórn Hörgárbyggðar gerir ekki athugasemd við framlagða kostnaðarskiptinu. Sveitarstjórn ítrekar mikilvægi þess að sveitarfélögin leiti leiða til að ná fram sparnaði og er sveitarstjóra falið að vinna að því máli í samstarfi við hin aðildarsveitarfélögin.

 

5. Leikskólamál - staða

Kynnt voru drög að samningi um viðbyggingu við Leikskólans á Álfasteini við Kötlu ehf.

 

6.  Bréf frá félagi vélsleðamanna í Skagafirði

Um nauðsyn þess að ryðja vegarslóð upp eftir Kaldbaksdal á Öxnadalsheiði til að auðvelda mönnum að komast upp á hálendið þegar sjóleysi hamlar för frá láglendinu. Væri það til mikils öryggisauka ef slys ber að höndum yfir vetrartímann að komast þar upp á vélsleðum. Leitað er eftir leyfi landeigenda og þeirra sem hafa lögsögu á þessu svæði að heimila slíka framkvæmd sbr. meðfylgjandi yfirlitsmynd og greinargerð frá VST c/o Birni Sveinssyni.

Einnig kemur fram að Landsbjörg tekur undir með björgunarmönnum SL á Norðurlandi um nauðsyn þess að bæta aðgengi upp á hálendið á norðanverðu landinu.

Sveitarstjórn Hörgárbyggðar samþykkir erindið fyrir sitt leyti með fyrirvara um samþykki Náttúruverndarnefndar Eyjafjarðar. Einnig leggur sveitarstjórn áherslu á að vandað verði til alls frágangs við vegastæðið.

Oddvita falið að koma erindinu til nefndarinnar.

 

7. Hlíðarbær

Ákveðið er að fara í þak og endurbætur á lofti í sal í Hlíðarbæ nú í sumar. Fjármagn verði tekið af framkvæmdafé sveitarfélagsins. Búið var að samþykkja tilboð í málningu utanhúss.

Oddvita falið að fá tilgreinda aðila í verkið.

 

8. Njólaeyðing

Sverrir á Djúpárbakka er tilbúin að taka að sé að vinna verkið í samvinnu við landeigendur og er ákveðið að byrja inn í Hörgárdal og fara niður vestan ár. Samþykkt að setja allt að kr. 250.000 fyrir utan VSK í verkið að þessu sinni þ.e. í efni og vinnu.

Oddvita falið að vinna að málinu.

 

9.  Bréf og erindi

a) Frá refaveiðimönnum

Vignir Stefánsson og Hjörleifur Halldórsson óska eftir áframhaldandi ráðningu við refavinnslu í Öxnadal.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

 

b) Erindi frá formönnum Umf. Smárans

Óskað er eftir fundi með sveitarstjórn Hörgárbyggðar til að ræða framtíðarskipulag á íþróttaaðstöðu Ums. Smárans á Þelamörk.

Oddvita og varaoddvita falið að ræða við formennina.

 

c) Styrkbeiðni frá UMFÍ til að gefa út Skinfaxa.

Efni blaðsins er helgað Unglingalands­mótinu á Laugum í Reykjadal. Samþykkt var að kaupa styrktarlínu á kr. 5.000.

 

d) Dreift var á fundinum ýmsu efni til kynningar sem bókað verður á næsta fundi ef þurfa þykir.

 

10. Trúnaðarmál

 

Fleira ekki rætt og fundi slitið kl: 00:01