Stjórn Íþróttamiðstöðvar á Þelamörk, fundur nr. 2 - 2008

13.03.2008 13:45

Fimmtudaginn 13. mars 2008 kom stjórn Íþróttamiðstöðvarinnar saman til fundar í skrifstofu Hörgárbyggðar. Mættir voru: Axel Grettisson, Helgi Steinsson, Lárus Orri Sigurðsson og Guðmundur Sigvaldason, sem ritaði fundargerð.

 

Fundurinn hófst kl. 13:45.

 

Fyrir var tekið:

 

1.      Endurbætur sundlaugarkerfa

Lagðar fram teikningar að fyrirhuguðum endurbótum á sundlaug, sbr. fyrri ákvarðanir stjórnar Íþróttamiðstöðvarinnar og sveitarstjórnanna.

Rætt um rekstur sundlaugarinnar í sumar með tilliti til framkvæmdanna, þ.m.t. hvort sundlaugin verði opin í sumar og þá hve langan tíma. Ákveðið var að heimila forstöðumanni að ráða tvo starfsmenn í sundlaugina fyrir sumarið.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14:40