Menningar- og tómstundanefnd, fundur nr. 2

18.11.2010 20:00

Fimmtudaginn 18. nóvember 2010 kl. 20:00 kom menningar- og tómstundanefnd Hörgársveitar saman til fundar í matsal Þelamerkurskóla.

 

Fundarmenn voru: Árni Arnsteinsson, Bernharð Arnarson, Gústav G. Bollason, Halldóra Vébjörnsdóttir og Hanna Rósa Sveinsdóttir, svo og Jónína Garðarsdóttir og Jósavin Arason, sem eru varamenn í nefndinni. Auk þess var á fundinum Guðmundur Sigvaldason, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.

 

Þetta gerðist:

 

1. Málefni Íþróttamiðstöðvarinnar á Þelamörk

Gerð var grein fyrir nokkrum þáttum hjá Íþróttamiðstöðinni á Þelamörk, þ.e. aukinni mönnun, sbr. nýja reglur um öryggi sundstaða, viðhald rennibrautar, endurbætur á nýrri flísalögn og endurbætur á blöndunartækjum í baðklefum. Þessir þættir eru til umræður við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011.

 

[Árni Arnsteinsson vék af fundi.]

 

2. Umsóknir um starf menningar- og atvinnumálafulltrúa

Lagt fram yfirlit yfir umsóknir um starf menningar- og atvinnumálafulltrúa, sem auglýst var í október sl. Umsóknir eru samtals 31.

Að lokunum umræðum var Ákveðið var eftirtaldir umsækjendur verði boðaðir til viðtals um starfið: . . . . . .

Umræður undir þessum lið voru sameiginlegar með atvinnumálanefnd og var niðurstaða menningar- og tómstundanefndar samhljóða niðurstöðu atvinnumálanefndar í málinu, sjá fundargerð hennar frá í dag.

 

Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 21:40.